Í Reykjanesbæ eru starfrækt frístundaheimili fyrir nemendur í 1. - 4. bekk við hvern grunnskóla eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 16:15. Frístundaheimilin bjóða upp á skipulagða og metnaðarfulla tómstundadagskrá þar sem allir nemendur geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Starfið á frístundaheimilum
Starfið byggir á þörfum barna og er mótað af leik, félagslegu samneyti og skapandi starfi. Lögð er áhersla á að börn fái svigrúm til að velja sér verkefni, taka þátt á eigin forsendum og njóta sín í daglegu starfi.
Dagskráin er fjölbreytt og getur meðal annars falið í sér:
- frjálsan leik inni og úti
- skapandi verkefni og föndur
- hreyfingu og útiveru
- samveru og rólegar stundir
Markmiðið er að styðja við félagsfærni, sjálfstæði og jákvæða upplifun barna eftir skóladaginn.
Öryggi og vellíðan
Á frístundaheimilum er lögð rík áhersla á öryggi, virðingu og góð samskipti. Starfsfólk vinnur eftir skýrum ramma og leggur sig fram um að skapa hlýlegt andrúmsloft þar sem öll börn finna sig vel.
Starfið er unnið í nánu samstarfi við skóla og foreldra, með velferð barnsins að leiðarljósi.
Fyrir hverja eru frístundaheimili
Frístundaheimili eru ætluð börnum í 1. – 4. bekk grunnskóla í Reykjanesbæ. Starfið hentar börnum sem þurfa öruggt og uppbyggilegt frístundastarf eftir skóla.
Aðlögun milli skólastiga
Frístundaheimili grunnskóla brúa bilið milli leik- og grunnskólagöngu barna með því að bjóða uppá sumarfrístund. Með þessu skapast tækifæri til að hefja aðlögun nýrra leikskólabarna að hausti og styðja við mjúka yfirfærslu yfir í grunnskólann.
Þannig fá tilvonandi nemendur í 1. bekk tækifæri til að kynnast umhverfi, starfsfólki og skólastarfi sínu í öruggu og leikrænu samhengi. Þetta getur auðveldað skólabyrjun og stutt við vellíðan barna á nýju skólastigi.

Frístundaakstur í Reykjanesbæ
Reykjanesbær býður upp á frístundaakstur fyrir börn sem eru skráð í frístundaheimili í grunnskólum bæjarins. Markmiðið er að auka þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi og auðvelda fjölskyldum að samræma frístundir barna og hefðbundinn vinnutíma foreldra.
Frístundaakstur er ætlaður nemendum í 1.–4. bekk sem eru skráðir í frístundaheimili. Aksturinn er innifalinn í gjaldi frístundaheimilanna og skráning fer fram í gegnum Völu skráningarkerfið.
Aksturinn er pantaður í Völu, sama kerfi og notað er til að skrá börn í frístundaheimilin.
Aukið aðgengi að íþróttum og tómstundum
Með frístundaakstri vill Reykjanesbær jafna aðstöðumun barna þegar kemur að aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi. Þjónustan styður við fjölbreytt framboð og hvetur börn til virkrar þátttöku í skipulögðu starfi.
Foreldrar eru hvattir til að kynna sér vel hvaða íþróttir og tómstundir eru í boði fyrir börnin. Yfirlit yfir framboð má finna á frístundir.is, þar sem hægt er að sía eftir aldri og staðsetningu.