Dagdvöl er góður og hentugur stuðningur fyrir eldra fólk sem vill búa heima. Þjónustan veitir aðstoð, eftirlit og góða samveru yfir daginn.
Í Reykjanesbæ eru tvær dagdvalir, á Nesvöllum og í Selinu við Vallarbraut.
Hvað er í boði í dagdvöl?
Í dagdvöl er lögð áhersla á vellíðan, virkni og öryggi. Í boði er meðal annars:
- Fjölbreytt tómstundaiðja
- Samverustundir og félagslíf
- Hreyfing og þjálfun
- Fæði og hvíldaraðstaða
- Aðstoð við persónulega umhirðu
Opnunartími og kostnaður
Dagdvalirnar eru opnar mánudaga til föstudaga. Opnunartími er kl. 08:00 – 16:00.
Við sækjum þjónustuþega að morgni og keyrum þá heim síðdegis.
Hægt er að vera í dagdvöl 1 til 5 daga í viku.
Dagdvöl kostar 1.675 kr. á dag. Auk þess er greitt tómstundargjald sem er 1.509 kr. á mánuði.
Sækja um dagdvöl
Þú getur sótt um dagdvöl á Mínum síðum. Þú getur líka fyllt út PDF-umsókn og sent á nesvellir@reykjanesbaer.is eða prentað umsóknina og skilað á þjónustuborðið á Nesvöllum
Með umsókninni þurfa að fylgja upplýsingar frá lækni eða öðrum fagaðila um þörf fyrir dagdvöl.
Dagdvöl á Nesvöllum
Á Nesvöllum er almenn dagdvöl fyrir fólk sem þarf félagsskap, eftirlit og aðstoð. Þar eru einnig í gangi fjölbreyttir viðburðir félagsstarfs eldra fólks.
Á staðnum er ýmis þjónusta í boði gegn gjaldi. Þar á meðal eru hárgreiðslustofa og snyrtistofa.
Símanúmerið á Nesvöllum er 420 3400.
Á Facebook-síðu Nesvalla má sjá matseðla og dagskrá.
Dagdvöl í Selinu
Í Selinu við Vallarbraut 4 er dagdvöl fyrir fólk með minnisskerðingu. Þar er lögð áhersla á öryggi, félagsskap og daglega rútínu.
Símanúmerið í Selinu er 421 6272.