Félagslegt húsnæði
Sótt er um félagslegt leiguhúsnæði á Mínum síðum með því að fylla út umsókn og skila þeim gögnum sem óskað er eftir. Með umsókn þarf að skila nýjasta skattframtali og staðgreiðsluyfirliti yfirstandandi árs fyrir alla heimilismenn 18 ára og eldri.
Fasteignir Reykjanesbæjar eiga félagslegt leiguhúsnæði í sveitarfélaginu og tilkynna velferðarsviði þegar íbúð losnar til úthlutunar. Umsóknir eru metnar samkvæmt gildandi úthlutunarreglum. Við matið er meðal annars tekið tillit til tekna, eigna og fjölskyldustærðar. Velferðarsvið Reykjanesbæjar annast úthlutun félagslegs húsnæðis.
Félagslegar íbúðir fyrir eldra fólk
Áhersla er lögð á að eldra fólk hafi aðgang að hentugu húsnæði sem tekur mið af aðgengi, öryggi og vellíðan. Markmiðið er að íbúðirnar séu staðsettar nálægt þjónustu og daglegu mannlífi til að styðja við sjálfstæði og virka þátttöku í samfélaginu.
Fasteignir Reykjanesbæjar eiga félagslegt leiguhúsnæði fyrir eldra fólk og tilkynna velferðarsviði þegar íbúð losnar til úthlutunar. Umsóknir eru metnar samkvæmt gildandi úthlutunarreglum. Við matið er meðal annars tekið tillit til tekna, eigna og fjölskyldustærðar. Velferðarsvið Reykjanesbæjar annast úthlutun íbúða fyrir eldra fólk.
Búseta fyrir fatlað fólk
Fatlað fólk á kost á fjölbreyttum búsetuúrræðum í Reykjanesbæ. Þjónustan er sniðin að ólíkum þörfum og aðstæðum. Í boði eru heimili með sólarhringsþjónustu sem og stuðningur við sjálfstæða búsetu. Markmiðið er að styðja við daglegt líf og samfélagsþátttöku. Val á búsetuúrræði fer fram í samráði við viðkomandi og aðstandendur eftir því sem við á. Sólarhringsþjónusta er veitt á þremur heimilum í Reykjanesbæ. Auk þess fá margir einstaklingar stuðning á eigin heimili víðs vegar um sveitarfélagið.