Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Ráðgjöf vegna ofbeldis

Ef þú verður fyrir heimilisofbeldi er mikilvægt að fá hjálp strax. Þú getur haft samband við Lögregluna á Suðurnesjum í síma 112. Þú getur líka haft samband við velferðarsvið Reykjanesbæjar í síma 421 6700. Enginn á að þurfa að búa við ofbeldi frá sínum nánustu.

Ofbeldi í nánu sambandi

Heimilisofbeldi, einnig kallað ofbeldi í nánu sambandi, getur haft alvarleg áhrif. Áhrifin geta verið bæði andleg og líkamleg og varað lengi. Ofbeldi er aldrei í lagi. Hjálp er til staðar og þú þarft ekki að vera ein eða einn með þetta.

Börn og heimilisofbeldi

Börn sem búa við ofbeldi á heimili geta orðið fyrir miklu álagi. Það getur haft áhrif á líðan, sjálfsmat og samskipti þeirra við aðra. Börn sem verða vitni að ofbeldi upplifa oft svipuð einkenni og þau sem verða fyrir því sjálf. Því er mjög mikilvægt að veita börnum stuðning sem fyrst. Við leggjum áherslu á að börn fái aðstoð til að vinna úr reynslu sinni og líða örugg.

Suðurhlíð – miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

Suðurhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Suðurnesjum. Markmiðið er að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um ofbeldi og afleiðingar þess. Í Suðurhlíð er boðin áfallamiðuð ráðgjöf og stuðningur. Þjónustan er fyrir þolendur ofbeldis af öllum kynjum, 18 ára og eldri.

Nánari upplýsingar og tímabókanir finnur þú á vefsíðu Suðurhlíðar.