Umhverfis- og framkvæmdasvið sér um skipulags-, umhverfis- og byggingarmál í Reykjanesbæ. Sviðið vinnur einnig að rekstri og uppbyggingu innviða, viðhaldi fasteigna og þróun bæjarumhverfisins.
Markmiðið er að skapa öruggt, aðlaðandi og vel skipulagt umhverfi fyrir íbúa og gesti.
Starfsemin byggir meðal annars á:
Sviðið starfar í umboði umhverfis- og skipulagsráðs.
Umhverfi og opin svæði
Sviðið sér um rekstur og viðhald gatna, opinna svæða og annarra innviða sveitarfélagsins. Verkefni á þessu sviði fara að hluta fram í Umhverfismiðstöð.
Helstu verkefni eru meðal annars:
- viðhald gatna og gönguleiða
- rekstur opinna svæða
- umhirða bæjarlands
- almenningssamgöngur
- fráveita og veitumál
Mikil áhersla er lögð á að bæta umhverfi bæjarins og skapa aðlaðandi og aðgengileg útivistarsvæði.
Skipulags- og byggingarmál
Sviðið sér um skipulags- og byggingarmál sveitarfélagsins og vinnur að þróun nýrra svæða fyrir íbúðabyggð, atvinnustarfsemi og útivist.
Undir málaflokkinn falla meðal annars:
- skipulagsmál
- lóðaskráningar
- byggingarleyfi
- nýframkvæmdir gatna og fráveitu
Markmiðið er að styðja við uppbyggingu sveitarfélagsins og bæta aðstöðu fyrir íbúa og atvinnulíf.
Eignaumsýsla og fasteignir
Eignaumsýsla sér um rekstur, viðhald og þróun fasteigna Reykjanesbæjar.
Þar undir falla meðal annars:
- eignasjóður sveitarfélagsins
- nýframkvæmdir
- viðhald fasteigna
- umsjón með fasteignum Reykjanesbæjar
Við leggjum áherslu á hagkvæman rekstur, gott viðhald og að fasteignir sveitarfélagsins styðji vel við þjónustu og starfsemi bæjarins.