Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Erindisbréf Ungmennaráðs í Reykjanesbæ

Erindisbréf Ungmennaráðs í Reykjanesbæ (UNGIR)

1. gr.

Tilgangur UNGÍR er að vera bæjarstjórn Reykjanesbæjar til ráðgjafar um málefni ungs fólks í bæjarfélaginu.

Þjálfa ungmenni yngri en 18 ára í lýðræðislegum vinnubrögðum og skapa þeim vettvang til að koma á framfæri skoðunum sínum, áherslum og tillögum við bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Þannig hafi þau áhrif á nærumhverfi og aðstæður ungmenna í bæjarfélaginu.

Ráðið skal gæta þess í störfum sínum að leita eftir sem flestum sjónarmiðum ungs fólks þannig að ályktanir þess og skoðanir endurspegli sem best almennan vilja ungmenna í Reykjanesbæ.

2. gr.

Öll ungmenni sem eiga lögheimili í Reykjanesbæ eru kjörgeng í UNGÍR.

UNGÍR skal skipað 13 fulltrúum og jafn mörgum til vara:

  • Einn fulltrúi úr hverjum grunnskóla í Reykjanesbæ og einn til vara, kosinn af nemendaráðum (alls 5 fulltrúar), situr í eitt ár.
  • Einn fulltrúi úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) og einn til vara, kosinn af nemendafélaginu (NFS), situr í eitt ár.
  • Tveir sameiginlegir fulltrúar og tveir til vara, tilnefndir af Skátafélaginu Heiðabúum, Björgunarsveitinni Suðurnes og kirkjufélögum, situr í eitt ár.
  • Einn fulltrúi úr félagsmiðstöð Reykjanesbæjar kosinn af Fjörheimaráði og einn til vara, situr í tvö ár.
  • Einn fulltrúi íþrótta- og ungmennafélaga tilnefndur af Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar og einn til vara, situr í tvö ár.
  • Einn fulltrúi frá Tómstundarbandalagi Reykjanesbæjar og einn til vara, situr í eitt ár.
  • Einn fulltrúi úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar kosinn af nemendum skólans og einn til vara, situr í eitt ár.
  • Einn fulltrúi ungmenna utan skóla og einn til vara, tilnefndur af sérfræðingum frá Fjölskyldu- og félagsmálasviði Reykjanesbæjar, situr í eitt ár.

3. gr.

Tilnefning fulltrúa í UNGÍR skal fara fram á tímabilinu 15. febrúar til 14. apríl ár hvert.

Kjörtímabil ráðsins er frá 1. september til 30. júní ár hvert.

Stefnt skal að því að um helmingur fulltrúa sitji í ráðinu eitt kjörtímabil en hinn helmingurinn tvö kjörtímabil.

4. gr.

Ungmennaráð skal eins og kostur er hafa frumkvæði að umfjöllun mála.

Ráðið skal skipta með sér verkum og kjósa sér formann og ritara.

Á fundum ráðsins skal rituð fundargerð sem senda skal bæjarráði Reykjanesbæjar.

5. gr.

Ungmennaráð skal funda a.m.k. tvisvar á ári á kjörtímabilinu, í október og mars.

Reykjanesbær skal leggja ráðinu til húsnæði til fundarhalda.

Tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar er tengiliður ráðsins við bæjaryfirvöld og bæjarráð og starfar með ráðinu og er því til aðstoðar.

Hann boðar til fyrsta fundar ungmennaráðs við upphaf nýs kjörtímabils UNGÍR.

6. gr.

Nefndarfólk skal fá greidda þóknun fyrir fundarsetu sem nemur tveimur fundum árlega.

7. gr.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skal gera ráð fyrir að funda með ráðinu í aprílmánuði ár hvert.

Fundirnir skulu vera opnir almenningi.

Tillögur, ályktanir og/eða bókanir sem ráðið hyggst beina til bæjarstjórnar skal senda bæjarritara eigi síðar en viku fyrir árlegan fund ráðsins með bæjarstjórn.

8. gr.

Erindisbréf þetta er sett með vísan til 2. mgr. 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007 og tekur gildi við staðfestingu bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.

Staðfest á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 1. nóvember 2011.