Ef ungmenni á aldrinum 16–18 ára og fjölskyldur þeirra þurfa aðstoð vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda, skertrar getu eða fötlunar getur Reykjanesbær veitt stuðning. Stuðningurinn er lagaður að aðstæðum hvers ungmennis og tekur mið af aldri, þroska og stöðu.
Stuðningsþörf er metin í samtali við ráðgjafa og tekur mið af aldri, þroska og stöðu barnsins. Markmiðið er að styðja barnið í daglegu lífi, efla félagsfærni og þátttöku og veita foreldrum stuðning í foreldrahlutverkinu.
Bóka viðtal hjá ráðgjafa
Ef ungmenni þurfa aukinn stuðning er fyrsta skrefið að bóka viðtal hjá ráðgjafa.
Þú getur bókað viðtal á nokkra vegu.
- Bóka viðtal á vefnum
Bókaðu viðtal á vefnum þegar þér hentar.
- Hafa samband með netfangi
Sendu netfang á reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
- Hringja í Þjónustuver
Hringdu í Þjónustuver í síma 421 6700.
Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf
Forsjáraðilum er veitt ráðgjöf til að tryggja góð skilyrði fyrir uppeldi og aðbúnað barna. Ráðgjöfin miðar að því að mæta mismunandi þörfum fjölskyldna og styrkja foreldra í hlutverki sínu.
Hópastarf fyrir 6–18 ára
Hópastarf er ætlað börnum og ungmennum sem þurfa stuðning til að rjúfa félagslega einangrun, styrkja lífsleikni og auka samfélagsþátttöku. Lögð er áhersla á félagsfærni, jákvæð samskipti og að læra að vera í hópi. Hópastarf fer fram í húsnæði Skjólsins, Grænásbraut 910.
Einstaklingsstarf fyrir 6–18 ára
Einstaklingsstarf veitir börnum og ungmennum persónulegan stuðning með það að markmiði að efla lífsleikni, sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu. Starfið er allt að 12 klukkustundir á mánuði, samkvæmt mati á stuðningsþörf.
Stuðningsfjölskylda fyrir 0–18 ára
Stuðningsfjölskylda er úrræði sem styður foreldra í foreldrahlutverkinu, veitir hvíld og styrkir stuðningsnet barnsins. Úrræðið getur nýst börnum á grunnskólaaldri þegar aðstæður kalla á. Fólk sem hefur áhuga á að gerast stuðningsforeldri getur kynnt sér málið nánar á vefsíðu Ísland.is um stuðningsfjölskyldur.
Skammtímadvöl fyrir 0–18 ára
Skammtímadvöl er tímabundin dvöl utan heimilis sem léttir álagi af fjölskyldum og veitir börnum og ungmennum með langvarandi stuðningsþarfir tilbreytingu. Dvölin getur verið frá hluta úr degi upp í nokkra daga á mánuði, eftir mati á þörf.
Sameiginleg skammtímadvöl fyrir sveitarfélög á Suðurnesjum er í Heiðarholti í Garði.
Skólaakstur fatlaðra ungmenna
Ungmenni í framhaldsskóla með langvarandi stuðningsþarfir sem ekki geta ferðast með strætó eiga rétt á skólaakstri á skólatíma, samkvæmt mati á stuðningsþörf.
Þjónustan er fyrir ferðir innan Reykjanesbæjar í og úr skóla eða í stoðþjónustu, til dæmis sjúkraþjálfun eða vegna tómstunda.
Skjólið
Skjólið er frístundastarf fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir í 5.–10. bekk og nemendur í framhaldsskóla. Starfið fer fram eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og veitir börnum öruggt og skipulagt umhverfi.
Nánari upplýsingar og umsókn um Skjólið má finna á undirsíðu um Skjólið.