
Hvað felst í daggæslu hjá dagforeldrum?
Dagforeldrar bjóða daggæslu barna í heimahúsum og starfa sjálfstætt með starfsleyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, að fenginni umsögn frá okkur í Reykjanesbæ, en við sinnum áfram eftirliti og stuðningi við starfsemina; hvert dagforeldri má vera með allt að fimm börn í einu.
Spurt og svarað um dagforeldra
- Hvernig finnur þú dagforeldri?
Við mælum með að þú talir við tvo eða fleiri dagforeldra, kynnir þér starfsemina vel og veljir það sem hentar barninu þínu best.
- Gæslusamningur og uppsögn
Þú og dagforeldrið gerið með ykkur gæslusamning, þar sem uppsagnarfrestur er einn mánuður og uppsögn miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar, en fyrsti mánuðurinn er reynslutími.
Gjaldskrá og niðurgreiðsla
Dagforeldrar eru með eigin gjaldskrá. Við í Reykjanesbæ greiðum niður daggæsluna samkvæmt reglum.
Frá 1. janúar 2026 eru upphæðirnar:
- 100.036 kr. fyrir barn yngra en 18 mánaða
- 142.917 kr. fyrir barn 18 mánaða eða eldra
Einnig er hægt að fá auka niðurgreiðslu vegna fleirbura.
Umsjón og stuðningur
Leikskólafulltrúi heldur utan um málefni dagforeldra. Þar færðu bæði stuðning og aðstoð ef þörf krefur. Ef upp kemur ágreiningur geturðu leitað til leikskólafulltrúa.
Hafa samband:
- Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir
- Netfang: ingibjorg.b.hilmarsdottir@reykjanesbaer.is
Samtök dagforeldra
Formaður Samtaka dagforeldra á Suðurnesjum er Kittý Guðmundsdóttir.