Velferðarsvið styður íbúa með fjölbreyttri þjónustu og ráðgjöf sem miðar að auknum lífsgæðum, þátttöku og jöfnum tækifærum.
Við leggjum áherslu á:
- fyrirbyggjandi stuðning
- snemmtæka þjónustu
- virðingu og gott samstarf
- samþætta og aðgengilega þjónustu
Markmiðið er að styðja börn, einstaklinga og fjölskyldur til virkrar þátttöku í samfélaginu án mismununar.
Þjónusta og stuðningur
Áhersla er lögð á sterka framlínuþjónustu og gott samstarf milli þjónustukerfa. Við vinnum í samráði við fólk og leggjum áherslu á að þróa þjónustu sem tekur mið af þörfum íbúa.
Velferðarsvið vinnur samkvæmt meðal annars:
- lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991
- barnaverndarlögum nr. 80/2002
- lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018
Alþjóðleg vernd
Frá árinu 2004 hefur Velferðarsvið Reykjanesbæjar samkvæmt samningi við Útlendingastofnun séð um þjónustu og aðbúnað fyrir fólk sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Allir með
Á velferðarsviði er unnið verkefnið Allir með sem er samfélagsverkefni með áherslu á verndandi þætti í lífi barna. Verkefnið vinnur meðal annars gegn:
- einelti
- félagslegri einangrun
- fordómum
- ofbeldi
- hatursorðræðu
Markmiðið er að styðja við inngildandi samfélag þar sem börn og ungmenni upplifa öryggi, þátttöku og virðingu.
Allir með skóli
Unnið er að stofnun Allir með skóla sem verður fræðslu- og þjálfunarvettvangur fyrir hugmyndafræði verkefnisins. Þar verða leiðtogar í skipulögðu barna- og ungmennastarfi þjálfaðir í að:
- efla jákvæða hópamenningu
- styrkja félagslega þátttöku
- stuðla að inngildandi samfélagi