Hvenær starfar Vinnuskólinn sumarið 2026?
Vinnuskólinn hefur störf 15. júní og lýkur störfum 30. júlí. Ungmenni hafa því sjö vikur til að skila inn tilgreindum fjölda vinnustunda hvenær sem er á starfstíma Vinnuskólans.
Þetta gefur svigrúm til að vinna upp forföll vegna veikinda, sinna tómstundum eða öðrum viðburðum.
Hver er vinnutíminn?
Vinnutími er mismunandi eftir aldri:
8. bekkur (14 ára á árinu) Unnið er frá kl. 08:30 – 11:30 Heildarfjöldi vinnustunda: allt að 60 klst
9. og 10. bekkur (15–16 ára á árinu) Unnið er frá kl. 08:30 – 15:30 Heildarfjöldi vinnustunda: allt að 120 klst
Hádegismatur er klukkustund og er hlé á vinnu. Ungmenni sem eru 15 ára og eldri vinna því 6 klukkustundir á dag.
Eru matar- og kaffitímar?
Já. Starfsfólk og ungmenni eiga rétt á bæði matar- og kaffitímum.
Kaffitímar eru:
- kl. 10:00 – 10:15
- kl. 14:00 – 14:15
Hádegismatur er:
- kl. 11:30 – 12:30
Þar sem engin sérstök aðstaða er á öllum vinnusvæðum er eðlilegt að ungmenni sjást sitja og hvíla sig í hléum.
Hvernig eru laun og tímakaup?
Laun ungmenna í Vinnuskóla Reykjanesbæjar miðast við hlutfall af launaflokki 117.
Tímakaup 2025:
- 8. bekkur Tímakaup: 1.181 kr Orlof (13,04%): 154 kr Samtals með orlofi: 1.335 kr
- 9. bekkur Tímakaup: 1.181 kr Orlof (13,04%): 154 kr Samtals með orlofi: 1.335 kr
- 10. bekkur Tímakaup: 1.476 kr Orlof (13,04%): 192 kr Samtals með orlofi: 1.669 kr
Hvenær eru laun greidd?
Launatímabil Vinnuskólans er frá 15. til 14. hvers mánaðar. Launaseðlar birtast í heimabanka ungmenna fyrsta hvers mánaðar undir „rafræn skjöl“.
Greiðslur:
- júlí: engin greiðsla
- ágúst: greiðsla fyrir 15. júní – 14. júlí
- september: greiðsla fyrir 15. júlí – 30. júlí
Ungmenni þurfa að vera með bankareikning í eigin nafni.
Hvað með skattkort og persónuafslátt?
Ungmenni sem eru 16 ára á árinu (10. bekkur) þurfa að skila skattkorti rafrænt til að nýta persónuafslátt sinn.
Skil fara fram á vef Skattsins. Staðfestingu þarf að senda á hjalp.launadeild@reykjanesbaer.is, ásamt nafni og kennitölu, og taka fram að um starf í Vinnuskólanum sé að ræða.
Hvernig tilkynni ég forföll eða leyfi?
Forföll og leyfi eru skráð í tímaskráningarkerfinu Völu. Ef ungmenni mætir ekki í vinnu og er ekki skráð í leyfi er haft samband við forsjáraðila.
Hvernig er brugðist við samskiptavanda eða einelti?
Vinnuskólinn leggur mikla áherslu á jákvæð samskipti og öryggi. Ef upp kemur samskiptavandi eða einelti leitast starfsfólk og samskiptateymi Vinnuskólans við að leysa málið strax í samráði við ungmenni og forsjáraðila.
Markmiðið er alltaf að leysa mál á farsælan hátt áður en grípa þarf til frekari aðgerða.