Afmælisdagur Harry Potter 31. júlí 2023
31.07 kl. 10:00-17:00
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Mánudaginn 31. júlí á Harry Potter afmæli, og því ber að fagna!
Dagskrá:
Kl. 10-17 Töfrandi föndur og sokkasmiðja Dobbys.
Kl. 11-17 Galdraspil í miðju bókasafnsins.
Kl. 11-15 Leitin að gullnu eldingunnni í Hólfinu. Hjálpaðu Harry að finna gullnu eldinguna og taktu þátt í lukkuleik.
Kl. 14-16 Skelltu á þig flokkunarhattinum til þess að komast að því hvaða heimavist þú tilheyrir.
Á safninu verða einnig til sýnis ýmsir munir frá galdraheiminum.
Við hlökkum til þess að sjá sem flesta og hvetjum fólk til þess að mæta í búning!
Allt galdrafólk og muggar velkomið! Kostar ekkert!