Fornsögunámskeið
20.02 kl. 19:30-21:30
Viðburðir bókasafn
Bókasafn
Þriðjudaginn 20. febrúar klukkan 19.30 verður annar hittingur (af fjórum) í námskeiði um Fóstbræðrasögu í Bókasafni Reykjanesbæjar. Skráning er enn þá opin!
Íslenskukennarinn Anna Karlsdóttir Taylor stýrir námskeiðinu sem er á þriðjudagskvöldum frá 19.30 - 21.30, samtals 4 skipti.
Námskeiðið kostar 4.000 kr. og innifalið er kaffi ásamt meðlæti.
Skráning er nauðsynleg en hægt er að skrá sig í afgreiðslu safnsins eða hér.