Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Akstursþjónusta

Fatlað fólk sem hefur ekki tök á að nota strætó getur fengið akstursþjónustu í Reykjanesbæ. Þjónustan er ætluð til ferða í vinnu, skóla og í sérhæfða þjónustu, til dæmis til hæfingar eða læknis.

Akstursþjónusta er almennt veitt á sama tíma og innanbæjarstrætó er í akstri.

Kostnaður

  • Akstursþjónusta kostar 2.000 krónur á ári
  • Innifalið eru allt að 62 ferðir á mánuði

Sækja um akstursþjónustu

Þú getur sótt um akstursþjónustu rafrænt á Mínum síðum. Við förum yfir umsóknina og höfum samband.

Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 421 6700.

Ferðakostnaður eftir aðgerðir

Akstursþjónusta Reykjanesbæjar er ekki ætluð fólki sem hefur farið í liðskiptaaðgerðir eða sambærilegar aðgerðir.

Í slíkum tilvikum er hægt að sækja um endurgreiðslu ferðakostnaðar hjá Sjúkratryggingum Íslands. Nánari upplýsingar má finna um greiðsluþátttöku vegna ferðakostnaðar innanlands á vef Sjúkratrygginga Íslands.