Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Heima- og stuðningsþjónusta

Heima- og stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning í daglegu lífi. Þjónustan er ætluð þeim sem þurfa aðstoð vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar.

Stuðningsþjónusta er veitt bæði inni á heimilinu og utan þess.

Hverjir geta fengið þjónustuna?

Heima- og stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning.Þörfin getur tengst skertri getu, veikindum, álagi eða fjölskylduaðstæðum.

Þegar umsókn hefur borist metum við aðstæður og stuðningsþörf. Þjónustan hefst í kjölfar þess mats.

Sækja um heima- og stuðningsþjónustu

Þú sækir um á Mínum síðum. Þú getur líka fyllt út eyðublað og sent á netfangið nesvellir@reykjanesbaer.is. Einnig er hægt að skila því prentuðu á þjónustuborðið á Nesvöllum. 

Umsókn

Sækja um

Þegar þú hefur skilað inn umsókn munum við meta aðstæður og stuðningsþörf og höfum samband við þig.