Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Notendasamningar og NPA

Fatlað fólk sem þarf meiri og sérhæfðari aðstoð en heima- og stuðningsþjónusta getur gert notendasamning við Reykjanesbæ.

Með notendasamningi stýrir viðkomandi sjálft fyrirkomulagi þjónustunnar, til dæmis hvaða aðstoð er veitt, hvernig hún er skipulögð, hvenær og hvar hún fer fram og hver veitir hana.

Það styður við aukið sjálfstæði, val og stjórn í eigin lífi.

Tegundir notendasamninga

Notendasamningar geta verið með mismunandi hætti, meðal annars:

  • fyrirkomulag þar sem einstaklingur stýrir sjálfur þjónustu frá starfsfólki Reykjanesbæjar (allt að 60 klst. á mánuði )
  • beingreiðslusamningur, þar sem einstaklingur ræður sjálfur starfsfólk (umfram 60 klst. – 248 klst. á mánuði)
  • notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) (umfram 60 klst. á mánuði).
Umsókn

Sækja um notendasamning

Fyrsta skrefið er að bóka viðtal hjá ráðgjafa á velferðarsviði. Í viðtalinu er farið yfir aðstæður, þarfir og hvaða úrræði hentar best.

Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

NPA byggir á hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Fólk sem nýtir NPA stjórnar sjálft allri framkvæmd aðstoðarinnar, þar á meðal skipulagi, tímasetningum og hver veitir aðstoðina.

Skilyrði fyrir NPA

Til að eiga rétt á NPA þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • þörf fyrir stuðning í meira en 15 klukkustundir á viku
  • staðfest fötlunargreining
  • vera 18 ára eða eldri
  • ef um barn eða ungmenni yngra en 18 ára er að ræða geta forsjáraðilar sótt um
  • hafa lögheimili í Reykjanesbæ
  • búa sjálfstætt, búa í foreldrahúsum eða stefna að sjálfstæðri búsetu

Fólk 67 ára og eldra getur einnig átt rétt á NPA ef fötlun er ekki aldurstengd.