Hér finnur þú upplýsingar, þjónustu og stuðning fyrir fatlað fólk í Reykjanesbæ. Hér eru saman komnar helstu þjónustuleiðir sem styðja við jafnrétti, sjálfstætt líf og virka þátttöku í samfélaginu. Reykjanesbær býður upp á almenna þjónustu og einnig sérstaka þjónustu sem hefur það markmið að styðja við jafnrétti og tækifæri fatlaðs fólks til sjálfstæðs lífs.
Fatlað fólk
Í Reykjanesbæ er sérstök þjónusta í boði fyrir fatlað fólk til að tryggja að það geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi. Þjónustan inniheldur fjölbreytt úrræði, þar á meðal skjólið, sem veitir frístund fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir.



