Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar

Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar heldur utan um margvíslega starfsemi og þjónustu fyrir börn og ungmenni Reykjanesbæjar.

Má þar helst nefna:

  • Rekstur og umsjón með félagsmiðstöðvum Reykjanesbæjar - Fjörheimum
  • Rekstur og stjórnun á Vinnuskóla Reykjanesbæjar auk atvinnutengds náms
  • Umsjón og leiðsögn með Ungmennaráði Reykjanesbæjar
  • Umsjón og verkefnastýring á innleiðingarferli verkefnisins Barnvænt Sveitarfélag í samvinnu við UNICEF
  • Faglegt utanumhald og daglegur rekstur Listasmiðju Reykjaness
  • Umsjón með þverfaglegum forvarnarhópi Reykjanesbæjar - Samtakahópnum
  • Umsjón með Hlýjunni sem er einstaklingsmiðuð ráðgjöf og þjónusta fyrir börn og ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára í Reykjanesbæ​
  • Fjölbreytt viðburðahald s.s. árlegir forvarnardagar, ungmennaþing, ráðstefnur, ungmennaskipti Erasmus+ og ýmsar skemmtanir fyrir börn og ungmenni sveitarfélagsins
  • Þróun og innleiðing á ýmsum nýsköpunar- og forvarnarverkefnum í samstarfi við aðrar stofnanir og starfsfólk Reykjanesbæjar

Hlutverk og markmið

Helstu hlutverk og markmið Tómstundamiðstöðvar eru:

Heildræn stefnumótun og samfella í þjónustu: Samræming verkefna félagsmiðstöðva fyrir alla íbúa í öllum hverfum, svo sem forvarnir, lýðheilsuverkefni, samstarf við skóla og aðra aðila og samfélagsþróun.

Faglegur styrkur og aukin gæði: Miðstöðin vinnur í átt að faglegu umhverfi fyrir starfsfólk á vettvangi, stuðlar að aukinni menntun og símenntun á vettvangnum og tryggir gæðaviðmið í starfi.

Jafnt aðgengi fyrir alla íbúa: Með samræmdu starfi má tryggja að börn, unglingar, eldri borgarar og aðrir hópar njóti jafnra tækifæra til þátttöku – óháð búsetu.

Sýnileiki og samvinna: Miðstöðin starfar sem tengiliður milli ólíkra aðila í samfélaginu (t.d. skóla, íþrótta- og æskulýðsfélaga) og skapar samráðsvettvang um þróun tómstunda til framtíðar.

Innleiðing stefnu og nýsköpun: Sér um að innleiða stefnumarkandi aðgerðir Tómstundastefnu Reykjanesbæjar, þróa ný úrræði og bregðast við þörfum samfélagsins eftir því sem þær breytast