Frístundir.is
Á frístundir.is færðu góða yfirsýn yfir allt það fjölbreytta frístundastarf sem í boði er í Reykjanesbæ.
- Hvað finnur þú á fristundir.is?
Vefurinn gerir þér kleift að sía framboð eftir aldri og staðsetningu, þannig að auðvelt er að finna það sem hentar hverjum og einum.
Á vefnum má einnig finna hugmyndir að skemmtilegum stöðum fyrir útivist og samveru. Hvort sem áhuginn liggur í íþróttum, listum, útivist eða annarri tómstundastarfsemi ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Virkjun
Virkjun er tómstunda- og félagsmiðstöð fyrir einstaklinga 18 ára og eldri.
- Hvað er Virkjun?
Þar er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu og félagsstarf fyrir alla sem hafa áhuga, hvort sem fólk er í atvinnuleit eða ekki.
Í húsnæðinu er meðal annars að finna smíðaverkstæði, fönduraðstöðu fyrir málun og handverk, kaffiaðstöðu og rými fyrir ýmiss konar félagsstarf. Einnig fara þar reglulega fram leikir og mót í billjard og pílukasti. Bridge-félag Reykjanesbæjar og Flugmódelklúbburinn hafa jafnframt aðstöðu í húsnæðinu.
Staðsetning: Flugvallarbraut 740, 262 Reykjanesbæ (gengið inn að aftan)
Opnunartími: Mánudagar og fimmtudagar kl. 08:00–16:00
Sími: 824 1280

