Hlýjan býður upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára í Reykjanesbæ. Þjónustan er gjaldfrjáls.
Ungmenni fá viðtal hjá ráðgjafa sem hlustar, veitir stuðning og ráðleggingar við hvers kyns vandamálum, aðstoðar við úrlausnir og/eða hjálpar viðkomandi að komast í viðeigandi úrræði ef þörf er á. Ekki þarf tilvísun til að sækja þjónustu Hlýjunnar.
Við bendum á að einungis er hægt að bóka eitt viðtal í senn, og þarf því að bóka næsta viðtal eftir að fyrra hefur farið fram.
Tímar hjá ráðgjafa eru pantaðir í gegnum smáforritið NOONA. Hægt er að sækja smáforritið bæði í Play store og App store.
Starfsfólk
Forstöðukona Tómstundamiðstöðvar
Gunnhildur Gunnarsdóttir
Ráðgjafi
Karítas Lára Rafnkelsdóttir
Ráðgjafi
Þórdís H. Jónsdóttir
Hafa samband
Netfang hlyjan@reykjanesbaer.is Heimilisfang Hafnargata 88, 230 Reykjanesbær Símanúmer 421 8890