Listasmiðja Reykjaness hófst sem samstarfsverkefni félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima og Vinnuskóla Reykjanesbæjar sumarið 2021, þar sem ungmennum gafst tækifæri á að vinna við skapandi störf um sumarið.
Starfið gekk vonum framar og hefur verkefnið síðar þróast í að vera eitt af verkefnum Tómstundamiðstöðvar Reykjanesbæjar allt árið um kring. Verkefnið er starfrækt úr húsnæði Fjörheima við Hafnargötu 88.
Listasmiðja Reykjaness er verkefni þar sem lögð er áhersla á listsköpun og kynningu á margvíslegum list formum fyrir ungmenni Reykjanesbæjar. Ungmennin fá tækifæri til þess að þróa listsköpun sína og reynslu í að sýna sköpunarverkin sín í formi listasýninga, undir handleiðslu starfsmanns með menntun í listum.
Fjölbreyttir listahópar eru í boði fyrir börn og ungmenni á ýmsum aldri - þ.m.t Listaklúbbur Fjörheima sem er í boði endurgjaldslaust fyrir ungmenni á unglingastigi.
Opnunartímar Listasmiðju
2.- 4. bekkur
14:00 – 16:00 - þriðjudaga og fimmtudaga
4.- 7. bekkur
16:30 – 18:30 - þriðjudaga og fimmtudaga
13-17 ára (Listaklúbbur Fjörheima)
16:00 – 18:00 - mánudaga og miðvikudaga