Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Virkjun mannauðs

Virkjun mannauðs í Reykjanesbæ er tómstunda- og félagsmiðstöð fyrir einstaklinga 18 ára og eldri. Þar er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu og félagsstarf fyrir alla sem hafa áhuga, hvort sem fólk er í atvinnuleit eða ekki.

Í húsnæðinu er meðal annars að finna smíðaverkstæði, fönduraðstöðu fyrir málun og handverk, kaffiaðstöðu og rými fyrir ýmiss konar félagsstarf. Einnig fara þar reglulega fram leikir og mót í billjard og pílukasti. Bridge-félag Reykjanesbæjar og Flugmódelklúbburinn hafa jafnframt aðstöðu í húsnæðinu.

Staðsetning: Flugvallarbraut 740, 262 Reykjanesbæ (gengið inn að aftan)
Opnunartími: Mánudagar og fimmtudagar kl. 08:00–16:00
Sími: 824 1280