Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Frísbígolf

Í Reykjanesbæ eru þrír frísbígolfvellir, einnig kallaðir folfvellir. Allir vellirnir eru ókeypis og opnir almenningi.

Reykjanesbær

Völlurinn er við Aðalgötu, nálægt Rómantíska svæðinu og Vatnsholti.

Þetta er 11 brauta völlur sem hentar vel byrjendum. Brautirnar eru stuttar og liggja um fjölbreytt landslag. Áætlaður leiktími er um 45–60 mínútur.

Njarðvíkurskógur

Völlurinn í Njarðvíkurskógi er 18 brauta völlur í fallegu umhverfi.

Hann liggur um hraun og lítinn skóg og þar er nokkur hæðarmunur. Völlurinn hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa spilað áður. Áætlaður leiktími er um 1,5 klukkustund.

Gott er að hafa í huga að hraunið getur verið óslétt og auðvelt er að týna diskum.

Ásbrú

Völlurinn á Ásbrú er 9 brauta völlur við íbúðabyggðina á Ásbrú.

Hann er flatur og hentar vel fyrir styttri hringi. Áætlaður leiktími er um 40–60 mínútur.

Kort og nánari upplýsingar

Kort af frísbígolfvöllunum má finna í Kortsjá Reykjanesbæjar og á folf.is.

Mælt er einnig með UDisc appinu þar sem hægt er að skoða kort, leiðbeiningar, skrá skor og sjá umsagnir annarra spilara.