Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Reglur um frístundastyrk fyrir íbúa 67 ára og eldri

Reglur um frístundastyrk fyrir íbúa 67 ára og eldri, í Reykjanesbæ.

1. grein
Reykjanesbær er heilsueflandi sveitarfélag og er markmið með hvatagreiðslum að hvetja eldri íbúa í Reykjanesbæ til þátttöku í heilsueflandi íþrótta- og tómstundastarfi og efla almennt heilbrigði og hreysti þessa aldurshóps.

2. grein
Niðurgreiðslur ná til félaga og viðurkenndra aðila sem eru með skipulagða kennslu/þjálfun.

Hámarksgreiðsla fyrir hvern iðkanda er 45.000 kr.

Framvísa skal frumriti af greiðslukvittun þátttökugjalds fyrir viðkomandi iðkanda eigi síðar en tveim mánuðum eftir að þátttöku í kennslunni/þjálfuninni lýkur.

Hafi viðkomandi ekki nýtt sér frístundastyrk að hluta eða að fullu falla eftirstöðvar niður um áramót.

3. grein
Skilyrði fyrir veitingu hvatagreiðslu er:

  • Iðkandi eigi lögheimili í Reykjanesbæ og verði 67 ára á árinu eða eldri.
  • Stundi íþrótta/tómstundastarf sem stuðli betri heilsu og hreysti.
  • Framvísun frumrits af greiðslukvittunum þátttökugjalds iðkanda á tilskildum tíma.

4. grein
Sækja skal um frístundastyrk á vefsíðu Sportabler þegar greidd eru æfingagjöld. Þeir aðilar sem ekki eru með slíkt kerfi gefa út kvittun sem að viðkomandi kemur með í Þjónustuver Reykjanesbæjar og fyllir þar út eyðublað. Hvatagreiðslan verður svo greidd inn á reikning viðkomandi við fyrsta tækifæri.

Samþykkt af lýðheilsuráði