Almannavarnir hafa það hlutverk að samræma viðbrögð þegar hættuástand skapast vegna náttúruhamfara eða annarra neyðaratvika. Mikilvægt er að íbúar séu upplýstir, undirbúnir og þekki rétt viðbrögð.
Upplýsingar og viðvaranir
Upplýsingar um stöðu mála, viðvaranir og leiðbeiningar eru birtar á vef Almannavarna og hjá viðbragðsaðilum.
Ef þörf er á aðstoð, hringdu í Neyðarlínuna í síma 112.
Jarðskjálftar – viðbrögð
Ef jarðskjálfti verður:
Innandyra: Krjúpa – Skýla – Halda. Fara undir borð eða að burðarvegg, verja höfuð og háls og halda sér föstum. Halda sig frá gluggum.
Utandyra: Halda sig frá byggingum, raflínum og lausum hlutum. Fara á opið svæði ef mögulegt er.
Í bíl: Stöðva ökutæki, halda sætisbeltum spenntum og hlusta á útvarp eftir upplýsingum.
Undirbúningur heimila
- Festa skápa og þunga muni við vegg.
- Geyma þunga hluti í neðri skápum.
- Kynna sér staðsetningu vatnsinntaks og rafmagnstöflu.
- Hafa viðlagakassa tilbúinn (vasaljós, útvarp, rafhlöður, sjúkrakassa o.fl.). Nánari upplýsingar
- Senda smáskilaboð fremur en að hringja eftir stóran atburð til að minnka álag á símkerfi.
Eldgos og loftgæði
Eldgos geta haft í för með sér gasmengun og öskufall. Fylgist með loftgæðaupplýsingum frá Umhverfis- og orkustofnun og leiðbeiningum Almannavarna.
Ef hættuástand skapast eða þörf er á aðstoð skal hafa samband við 112
Rýmingaráætlanir
Lögreglan gefur fyrirmæli um rýmingu ef hætta skapast.
Rýmingaráætlun Reykjanesbæjar er aðgengileg á íslensku, ensku og pólsku.
Fjöldahjálparstöðvar eru virkjaðar þegar þörf krefur, m.a. í íþróttahúsum og skólum á svæðinu. Reykjanesbær: Íþróttarhúsið við Sunnubraut, Stapaskóli
- Suðurnesjabær: Grunnskólinn Garði, Grunnskólinn Sandgerði
- Grindavík: Íþróttahúsið við Austurveg, Hópsskóli
- Kópavogur: Kórinn íþróttahús
Hagnýtir tenglar
Við hvetjum íbúa til að kynna sér leiðbeiningar og vera viðbúna. Góður undirbúningur dregur úr hættu og eykur öryggi allra.