Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Reykjanesbæjar.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar 2026, Súlunnar.
Tilnefna má einstakling, hóp eða fyrirtæki sem unnið hefur vel að menningarmálum í Reykjanesbæ. Tilnefningu skal fylgja stuttur rökstuðningur.
Tilnefningum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@rnb.is í síðasta lagi föstudaginn 16. október 2026.
Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og reglur um menningarverðlaunin má finna á vef Reykjanesbæjar.
