Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.
Aron Heiðar Steinsson, veitustjóri á Umhverfis- og framkvæmdasviði Reykjanesbæjar, sótti nýverið ráðstefnu LUCI Association í borginni Oulu í Finnlandi
„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Ástu J. Grétarsdóttur
Guðmundur Leo Rafnsson og Eva Margrét Falsdóttir voru valin íþróttafólk Reykjanesbæjar 2025.
Reykjanesbær í samstarfi við verkefnið Mitt atkvæði – Mín rödd sem stutt er af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu stendur fyrir vinnustofum fyrir íbúa af erlendum uppruna til þess að auka kosningaþátttöku í sveitarstjórnarkosningum í vor
Vetrarfrí leik- og grunnskólanna er í vikunni og nóg í boði fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ sem vilja nýta dagana til samveru, útivistar og afþreyingar.
Það eru sannkölluð tímamót hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ en skólinn hefur nú formlega hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli eftir ítarlegt umsóknarferli. Samhliða þeirri viðurkenningu hefur skólinn einnig verið útnefndur Fyrirmyndarstofnun 2025.
Vika6 var haldinn í grunnskólum Reykjanesbæjar í fjórða sinn dagana 2. - 6. febrúar.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn var haldinn 10. febrúar síðastliðinn. Dagurinn er tileinkaður því að efla vitund um örugga og ábyrga notkun á netinu, sérstaklega meðal barna og ungmenna.
Undirbúningur BAUNAR, barna- og ungmennahátíðar Reykjanesbæjar, er nú hafinn. Hátíðin fer fram dagana 30. apríl til 10. maí 2026
Menntasvið Reykjanesbæjar hefur tekið saman greiningu á stöðu leikskólamála í bænum með hliðsjón af barnafjölda
Fimmtudaginn 5. febrúar var haldin hátíðleg samkoma fyrir starfsfólk sem náði 25 ára starfsaldri á árinu 2025 og þá sem létu af störfum vegna aldurs.
„Fólkið okkar“ er liður á samfélagsmiðlum Reykjanesbæjar, þar sem markmiðið er að varpa ljósi á öll þau fjölbreyttu störf sem unnin eru hjá bænum og allt það góða fólk sem þar starfar. Að þessu sinni kynnum við Ósk Matthildi Arnarsdóttur