Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Mannauður og laus störf

Hér má finna upplýsingar um störf hjá Reykjanesbæ og mannauðsmál sveitarfélagsins. Á undirsíðum má meðal annars sjá auglýst laus störf, kynna sér fríðindi starfsfólks, fræðslu og símenntun, mannauðstengdar stefnur og ráðningarferli.

Fríðindi

Reykjanesbær leggur áherslu á gott starfsumhverfi, heilsueflingu og velferð starfsfólks

Starfsfólki sveitarfélagsins standa meðal annars eftirfarandi fríðindi til boða:

  • Bókasafnskort með aðgangi að bókasöfnum Reykjanesbæjar
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum sveitarfélagsins
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sundlaugar Reykjanesbæjar
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó innan sveitarfélagsins

Starfsmenn leikskóla Reykjanesbæjar njóta einnig 40% afsláttar af dvalargjaldi í leikskólum sveitarfélagsins. Afslátturinn gildir eingöngu af dvalargjaldi en nær ekki til matargjalda.

Fræðsla og símenntun

Reykjanesbær leggur áherslu á fræðslu og starfsþróun starfsfólks. Sveitarfélagið rekur fræðslukerfið Fróða, þar sem að finna má nýliðafræðslu og fjölbreytt fræðsluefni fyrir starfsfólk.

Starfsfólk er hvatt til að viðhalda og efla þekkingu sína með símenntun og starfsþróun sem styður við faglegt starf og góða þjónustu.