Starfsfólki sveitarfélagsins standa meðal annars eftirfarandi fríðindi til boða:
- Bókasafnskort með aðgangi að bókasöfnum Reykjanesbæjar
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum sveitarfélagsins
- Gjaldfrjáls aðgangur í sundlaugar Reykjanesbæjar
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó innan sveitarfélagsins
Starfsmenn leikskóla Reykjanesbæjar njóta einnig 40% afsláttar af dvalargjaldi í leikskólum sveitarfélagsins. Afslátturinn gildir eingöngu af dvalargjaldi en nær ekki til matargjalda.