Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Bæjarstjóri

Vilhjálmur Árnason tók formlega til starfa sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní 2026. Hann kemur til starfsins með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, löggæslu og stjórnmálum.

Vilhjálmur er fæddur á Sauðárkróki árið 1983. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2004, útskrifaðist úr Lögregluskóla ríkisins árið 2006 og lauk síðar bæði BA-prófi og meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Vilhjálmur starfaði um árabil sem lögreglumaður, meðal annars hjá lögreglunni á Suðurnesjum, áður en hann tók sæti á Alþingi fyrir Suðurkjördæmi árið 2013. Á Alþingi gegndi hann fjölmörgum trúnaðarstörfum og sat í nefndum á sviði stjórnskipunar-, efnahags-, samgöngu-, umhverfis- og velferðarmála.

Vilhjálmur er kvæntur Sigurlaugu Pétursdóttur og eiga þau þrjá syni.