Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Röskun á skólastarfi

Óveður eða aðrar ófyrirséðar aðstæður geta haft áhrif á skóla- og frístundastarf í Reykjanesbæ. Öryggi barna, fjölskyldna og starfsfólks er ávallt í fyrirrúmi.

Tilgangur

Hér eru birtar almennar upplýsingar um viðbrögð við röskun á starfsemi leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.

Röskun getur meðal annars orðið vegna:

  • óveðurs eða ófærðar
  • eldgoss, jarðhræringa eða annarra náttúruhamfara
  • bilana í húsnæði eða veitukerfum
  • annarra ófyrirséðra aðstæðna

Viðbrögð ráðast af aðstæðum hverju sinni og geta verið mismunandi milli skóla.

Tilkynningar

Ef breyting verður á skóla- eða frístundastarfi fá foreldrar og forsjáraðilar tilkynningu frá viðkomandi skóla í gegnum hefðbundnar samskiptaleiðir hans.

Ef röskunin nær til fleiri starfsstöðva eða alls sveitarfélagsins verða upplýsingar einnig birtar á vef Reykjanesbæjar og eftir atvikum á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins.

Foreldrar og forsjáraðilar eru hvattir til að fylgjast vel með:

Nýjustu upplýsingar frá skólanum eða viðeigandi yfirvöldum gilda hverju sinni.

Áhrif á skóla- og frístundastarf

Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé tilkynnt sérstaklega.

Við röskun getur meðal annars þurft að:

  • seinka opnun eða flýta lokun
  • skerða þjónustu tímabundið
  • fella niður frístundastarf eða skólaakstur
  • breyta skipulagi máltíða eða annarrar þjónustu

Við erfiðar aðstæður getur tekið lengri tíma en venjulega að fullmanna skóla. Foreldrar og forsjáraðilar gætu því verið beðnir um að hafa börn heima eða sækja þau fyrr.

Foreldrar og forsjáraðilar meta ávallt sjálfir hvort óhætt sé fyrir barn að fara til eða frá skóla. Ef barn kemst ekki í skóla vegna veðurs, ófærðar eða annarra aðstæðna skal láta skólann vita. Slík fjarvist telst eðlileg þegar aðstæður gefa tilefni til.

Ekki skal leggja af stað ef aðstæður eru ótryggar eða ferðalag getur skapað hættu.

Tengiliðir

Ef spurningar vakna um starfsemi ákveðins skóla skal hafa samband beint við viðkomandi leikskóla, grunnskóla eða frístundaheimili.

Þjónustuver Reykjanesbæjar
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Sími: 421 6700
Netfang: reykjanesbaer@reykjanesbaer.is