Beint í efni

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárhagslegur stuðningur fyrir einstaklinga og fjölskyldur á leigumarkaði sem þurfa sérstakan stuðning vegna lágra tekna og þungrar framfærslubyrðar.

Til þess að geta sótt um sérstakan húsnæðisstuðning þarf viðkomandi að hafa fengið samþykktar húsnæðisbætur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Sótt er um húsnæðisbætur rafrænt á www.hms.is  og þar þarf umsækjandi að merkja við að hann veiti sveitarfélaginu aðgang að umsókninni hjá HMS. 

Sérstakur húsnæðisstuðningur fyrir námsmenn er fjárstuðningur sem er veittur til foreldra eða annarra forsjáraðila námsmanna 15-17 ára sem leigja á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Sótt er um rafrænt á Mínar síður > Umsóknir > undir Velferð er valið Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir námsmenn 15-17 ára.

Sérstakur húsnæðisstuðningur - Reykjanesbær