Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Skólaþjónusta við grunnskóla

Skólaþjónusta menntasviðs Reykjanesbæjar vinnur með grunnskólum, foreldrum og öðru fagfólki að því að styðja við nám, þroska, vellíðan og þátttöku barna og ungmenna. 

Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, ráðgjöf í daglegu skólaumhverfi og samfellu í þjónustu. Jafnframt er markmiðið að styrkja faglegt starf grunnskóla og getu þeirra til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda. 

Aðgangur að skólaþjónustu fer almennt í gegnum grunnskóla barnsins. Þannig er leitast við að veita stuðning á réttum tíma, í réttu samhengi og með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. 

Þjónustan byggir meðal annars á reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga nr. 444/2019. 

Ráðgjöf og stuðningur skólaþjónustu 

Í skólaþjónustu starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga sem vinnur í nánu samstarfi við grunnskóla, foreldra og annað fagfólk. 

Skólaþjónustan: 

  • veitir ráðgjöf um nám, þroska, líðan, hegðun, samskipti, skólasókn og þátttöku nemenda, 
  • styður skóla við að skapa öruggt, hvetjandi og inngildandi námsumhverfi, 
  • aðstoðar við að greina stuðningsþarfir og finna leiðir sem henta nemandanum og aðstæðum hans, 
  • styður kennara og stjórnendur við að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda, 
  • tekur þátt í teymisvinnu, lausnaleit og eftirfylgd þegar þörf er á, 
  • framkvæmir eftir atvikum nánari athuganir og mat á námi, þroska, máli eða öðrum þáttum sem tengjast stöðu nemandans, 
  • veitir ráðgjöf um viðeigandi úrræði og vísar áfram í sérhæfðari þjónustu þegar þörf er á, 
  • styður við þróunarstarf skóla og eflingu snemmtæks og heildræns stuðnings, 
  • vinnur með öðrum þjónustuaðilum þegar þörf er á samhæfðum stuðningi. 

Snemmtækur og heildrænn stuðningur 

Áhersla er lögð á að brugðist sé snemma við þegar vísbendingar koma fram um að nemandi þurfi aukinn stuðning og að stuðningur fari eins og kostur er fram í daglegu skólaumhverfi hans. 

Unnið er í anda Heillaspora (Nurture), þar sem áhersla er lögð á örugg tengsl, vellíðan, inngildingu og virka þátttöku nemenda í skóla- og frístundastarfi. 

Markmiðið er að byggja á styrkleikum nemandans og skapa aðstæður þar sem hann fær tækifæri til að læra, þroskast og taka virkan þátt í skólasamfélaginu. 

Samvinna og samstarf 

Góð samvinna foreldra, skóla og fagfólks er mikilvægur grunnur að farsælum stuðningi. 

Þegar þörf er á vinnur skólaþjónustan með öðrum þjónustuaðilum, svo sem velferðar- og heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að tryggja samræmdan og markvissan stuðning, samfellu í þjónustu og skýra verkaskiptingu. 

Áhersla er jafnframt lögð á að hlustað sé á rödd og sjónarmið barnsins og tekið tillit til þeirra í samræmi við aldur og þroska. 

Nemendaverndarráð 

Nemendaverndarráð er samráðsvettvangur innan grunnskólans þar sem fulltrúar skólans, skólaþjónustu, skólahjúkrunar og barna- og fjölskylduteymis vinna saman að málefnum nemenda. 

Þar eru málefni nemenda rædd þegar þörf er á frekari stuðningi, ráðgjöf eða samhæfingu. Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, lausnaleit og að mál fari í skýran og viðeigandi farveg. 

Í nemendaverndarráði er meðal annars: 

  • farið yfir stöðu og þarfir nemandans, 
  • rætt um leiðir til að styðja við nám, líðan og þátttöku, 
  • ákveðið hvernig stuðningi og eftirfylgd skuli háttað, 
  • metið hvort þörf sé á aðkomu annarra þjónustuaðila.