Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Skólaþjónusta við leikskóla

Skólaþjónusta menntasviðs Reykjanesbæjar vinnur með leikskólum, foreldrum og öðru fagfólki að því að styðja við þroska, vellíðan, nám og þátttöku barna. 

Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, ráðgjöf í daglegu umhverfi barnsins og samfellu í þjónustu frá leikskóla til grunnskóla. Jafnframt er markmiðið að styrkja faglegt starf leikskóla og getu þeirra til að mæta fjölbreyttum þörfum barna. 

Aðgangur að skólaþjónustu fer almennt í gegnum leikskóla barnsins. Þannig er leitast við að veita stuðning á réttum tíma, í réttu samhengi og með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. 

Þjónustan byggir meðal annars á reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga nr. 444/2019. 

Ráðgjöf og stuðningur skólaþjónustu 

Í skólaþjónustu starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga sem vinnur í nánu samstarfi við leikskóla, foreldra og annað fagfólk. 

Skólaþjónustan: 

  • veitir ráðgjöf um þroska, nám, líðan, hegðun, samskipti og þátttöku barna, 
  • styður leikskóla við að skapa öruggt, hvetjandi og inngildandi námsumhverfi, 
  • aðstoðar við að greina stuðningsþarfir og finna leiðir sem henta barninu og aðstæðum þess, 
  • tekur þátt í teymisvinnu, lausnaleit og eftirfylgd þegar þörf er á, 
  • framkvæmir eftir atvikum nánari athuganir og mat á þroska, námi, máli eða öðrum þáttum sem tengjast stöðu barns, 
  • veitir ráðgjöf um viðeigandi úrræði og vísar áfram í sérhæfðari þjónustu þegar þörf er á, 
  • styður við þróunarstarf leikskóla og eflingu snemmtæks og heildræns stuðnings, 
  • vinnur með öðrum þjónustuaðilum þegar þörf er á samhæfðum stuðningi. 

Snemmtækur og heildrænn stuðningur 

Áhersla er lögð á að brugðist sé snemma við þegar þörf fyrir stuðning kemur fram og að stuðningur fari eins og kostur er fram í daglegu umhverfi barnsins. 

Unnið er í anda Heillaspora (Nurture), þar sem áhersla er lögð á örugg tengsl, vellíðan, inngildingu og virka þátttöku barna. 

Markmiðið er að byggja á styrkleikum barnsins og skapa aðstæður þar sem hvert barn fær tækifæri til að þroskast, læra og njóta sín. 

Samvinna og samstarf 

Góð samvinna foreldra, leikskóla og fagfólks er mikilvægur grunnur að farsælum stuðningi. 

Þegar þörf er á vinnur skólaþjónustan með öðrum þjónustuaðilum, svo sem velferðar- og heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að tryggja samræmdan stuðning, samfellu í þjónustu og skýra verkaskiptingu. 

Nemendaverndarráð 

Nemendaverndarráð er samráðsvettvangur leikskóla og skólaþjónustu. Þar eru málefni barna rædd þegar þörf er á frekari stuðningi, ráðgjöf eða samhæfingu. 

Þar er meðal annars: 

  • farið yfir stöðu og þarfir barns, 
  • rætt um mögulegar leiðir til stuðnings, 
  • ákveðið hvernig stuðningi og eftirfylgd skuli háttað, 
  • metið hvort þörf sé á aðkomu annarra þjónustuaðila.