Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

4. fundur umhverfis- og framkvæmdaráðs Reykjanesbæjar - aukafundur

Fundurinn var haldinn þann 6. október 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Súlur

Viðstaddir: Brynjólfur Sveinn Ívarsson aðalmaður, Einar Þór Guðmundsson aðalmaður, Eysteinn Eyjólfsson aðalmaður, Guðbergur Ingólfur Reynisson formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Aron Heiðar Steinsson veitustjóri, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Eignasjóður Reykjanesbæjar – staða fjárfestingaráætlunar

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu fjárfestingaráætlunar eignasjóðs 2026.

Formaður gerði fundarhlé kl. 9:29.

Fundur settur aftur kl. 9:49.

Guðbergur Reynisson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta:

„Umhverfis- og framkvæmdaráð hefur fengið kynningu á minnisblöðum umhverfis- og framkvæmdasviðs, dags. 30. september 2026, um stöðu fjárfestingaráætlunar eignasjóðs. 

Þar koma fram frávik frá fjárheimildum ársins 2026, meðal annars vegna framkvæmda við leikskólann Drekadal, Völl, Myllubakkaskóla og Holtaskóla. Á móti eru ónýttar fjárheimildir vegna annarra verkefna. Nettófrávik fjárfestingaráætlunar eignasjóðs nemur samtals 271,8 m.kr. miðað við stöðu 28. september 2026.

Meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs telur óheppilegt að kostnaður hafi fallið til umfram fjárheimildir ársins áður en viðauki lá fyrir. Hvað framkvæmdir við Myllubakkaskóla og Holtaskóla varðar leggur meirihluti ráðsins hins vegar áherslu á að um er að ræða verkþætti sem rúmast innan heildarkostnaðaráætlunar verkefnanna. Kostnaðurinn hefur fallið til fyrr en fjárheimildir ársins gerðu ráð fyrir og dregst því frá eftirstöðvum verkefnanna.

Jafnframt liggur fyrir að stöðvun framkvæmdanna hefði haft í för með sér verulegan viðbótarkostnað og frekari tafir. Reynslan af fyrri stöðvunum framkvæmdanna sýnir jafnframt að slíkar ákvarðanir geta haft veruleg áhrif á bæði kostnað og framvindu verkefnanna.

Mikilvægt er því að gera skýran greinarmun á fráviki frá fjárheimild ársins og kostnaðarframúrkeyrslu framkvæmdanna sjálfra. Hvað skólana tvo varðar er ekki um að ræða nýjar framkvæmdir utan heildaráætlunar verkefnanna, heldur hefur hluti fyrirhugaðs framkvæmdakostnaðar fallið til fyrr en fjárheimildir ársins gerðu ráð fyrir. Heildaráætlaður kostnaður verkefnanna tveggja er rúmir 10 milljarðar króna og miðað við stöðu í lok september standa enn eftir um 2,7 milljarðar króna af áætluðum framkvæmdum. Stöðvun framkvæmdanna hefði því ekki leyst þann undirliggjandi vanda að fjármagna þarf eftirstöðvar þeirra, en hefði aukið kostnað og tafið verklok enn frekar.

Ljóst er að umtalsverður kostnaður vegna framkvæmda ársins 2025 var greiddur í byrjun árs 2026, eða um 74 m.kr. miðað við þá yfirferð reikninga sem farið hefur fram. Óraunhæft er að verkefni af þessari stærðargráðu séu fjármögnuð með árlegum fjárheimildum, hvað þá þegar fjárheimildir ársins duga ekki út árið. Þá liggur fyrir að upphafleg tillaga eignaumsýslu að fjárfestingaráætlun 2026 gerði ráð fyrir 1.250 m.kr. til Myllubakkaskóla sem forgangsverkefnis (B-hluti, A-forgangur), en fjárheimildin endaði í 979 m.kr. Um er að ræða lækkun upp á 271 m.kr. án þess að verkþættir hafi verið skornir niður að sama skapi.

Þessi staða undirstrikar mikilvægi þess að fjármögnun svo umfangsmikilla framkvæmda sé tryggð með fyrirsjáanlegum hætti til verkloka en ekki aðeins hluta framkvæmdatímans.

Breytingar hafa þegar verið hafnar á skipulagi og utanumhaldi framkvæmda, meðal annars með því að styrkja eignasjóð og færa aukna verkefnastjórn, kostnaðareftirlit og eftirfylgni nær sveitarfélaginu. Markmiðið er að tryggja betri yfirsýn, stytta boðleiðir, styrkja kostnaðareftirlit og að fjármögnun stórra framkvæmda verði eftir fremsta megni tryggð með fyrirsjáanlegum hætti áður en til þeirra er stofnað.

Meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs fagnar því að bæjarráð hafi samþykkt 170 m.kr. viðauka vegna framkvæmda við Myllubakkaskóla og Holtaskóla svo hægt sé að halda nauðsynlegum verkþáttum áfram með eðlilegum og hagkvæmum hætti. Meirihlutinn styður jafnframt þá áfangaskiptingu sem umhverfis- og framkvæmdasvið leggur til, þar sem brýnustu verkum er forgangsraðað.

Meirihluti umhverfis- og framkvæmdaráðs leggur að lokum áherslu á að fjármögnun framkvæmda verði framvegis tryggð með fyrirsjáanlegum hætti áður en til þeirra er stofnað.

Eftirlit með fjárheimildum, kostnaði og framvindu framkvæmda verði styrkt með minnisblaði frá sviðsstjóra á mánaðarlegum fundum ráðsins um stöðu allra framkvæmda sveitarfélagsins þar sem kostnaður og framvinda eru borin saman við samþykkta kostnaðaráætlun.“

Guðbergur Reynisson og Einar Þór Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki og Brynjólfur Sveinn Ívarsson, Miðflokki.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihluta:

„Lausatök nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks á rekstri bæjarins og óljós ábyrgðarkeðja í framkvæmdum veldur okkur verulegum áhyggjum. 

Mikilvægt er að tryggja ábyrgt utanumhald með framkvæmdum bæjarins til að forðast að lenda í sömu stöðu og nú er komin upp sem er yfirkeyrsla upp á um hálfan milljarð á einum mánuði.

Ekki er deilt um þörfina á því að halda áfram með verkefnin heldur að hér hafi verið farið verulega fram úr fjárheimildum og það án þess að skýr heimild hafi legið fyrir.

Sem fyrr stöndum við fyrir ábyrgri fjármálastjórn og munum styðja framhald verkefna eins og fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins hverju sinni ber.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn og Eysteinn Eyjólfsson Samfylkingu.

2. Kynning á fráveitu Reykjanesbæjar

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri fór yfir stöðu fráveitumála Reykjanesbæjar, fráveitutilskipunina og nýja reglugerð um fráveitu, ásamt því að kynna framtíðaráætlanir um hreinsistöðina Helgu.

3. Erindisbréf umhverfis- og framkvæmdarráðs

Erindisbréf ásamt minnisblaði lagt fram.

Umhverfis- og framkvæmdaráð staðfestir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum og vísar því til forsetanefndar. Jafnframt er óskað eftir að forsetanefnd taki athugasemdir í meðfylgjandi minnisblaði til skoðun

4. Reykjanesbraut, Hafnavegur-Garðskagavegur - umhverfismatsskýrsla

Tillaga að umsögn Reykjanesbæjar lögð fram ásamt umsögn skipulagsráðs.

Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir umsögn skipulagsráðs.

Með því að smella hér má skoða fundargerð skipulagsráðs á vef Reykjanesbæjar

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:10.