Dagskrá fundar
1. Fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs – áherslur deilda (2026070036)
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Aron Heiðar Steinsson veitustjóri og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fóru yfir áherslur sviðsins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
2. Mælaborð umhverfis- og framkvæmdasviðs (2026060250)
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, kynnti mælaborð sviðsins fyrir janúar til september 2026.
3. Staða verkefna eignaumsýslu (2025080340)
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fór yfir stöðu verkefna eignaumsýslu.
4. Sólbrekka – beiðni um þróunarsamning (2026100267)
Erindi frá Sólbrekku ehf. um þróunarsamning til 24 mánaða um landsvæði við og í kringum Seltjörn lagt fram. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar í umhverfis- og framkvæmdaráði, íþrótta-, tómstunda- og menningarráði og skipulagsráði.
Um er að ræða mikilvægt útivistarsvæði fyrir íbúa bæjarins þar sem fjölbreytt félagsstarf unnið af sjálfboðaliðum hefur þrifist í áratugi. Ef uppbygging í þessa veru á að eiga sér stað þarf að vinna hugmyndir áfram í samráði við hagaðila á svæðinu. Þá ber að gæta þess að Seltjörn er á náttúruminjaskrá og taka þarf mið af verndargildi svæðisins við mögulega uppbyggingu og gæta vatnsverndarsjónarmiða.
5. Keilisbraut – hugmynd að framkvæmdum (2026110402)
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnti hugmynd að framkvæmdum við Keilisbraut, m.a. til þess að bæta samfellu gönguleiða við götuna.
6. Fasteignir og þróunarreitir í eigu Reykjanesbæjar (2026110196)
Bæjarráð hefur samþykkt að auglýsa til sölu nokkrar fasteignir í eigu Reykjanesbæjar auk þess að kanna áhuga á þróunarreitum í eigu sveitarfélagsins.
Lagt fram.
7. Verklag samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2022110379)
Óskað er eftir umsögn um drög að verklagi samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við verklagið.
8. Fundargerð samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2022110379)
Fundargerð 29. fundar samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs dags. 11. nóvember 2026 lögð fram.
9. Tjarnargata 12 - fundargerðir frá verkframkvæmdum (2019050839)
Fundargerðir verkfunda vegna framkvæmda við Tjarnargötu 12 lagðar fram.
10. Fjölbrautaskóli Suðurnesja - fundargerðir frá verkframkvæmdum (2026110396)
Fundargerðir vegna viðbyggingar við Fjölbrautaskóla Suðurnesja lagðar fram.
11. Fundargerð skipulagsráðs 20. nóvember 2026 (2026010016)
Fundargerð 401. fundar skipulagsráðs dags. 20. nóvember 2026 lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:51.