Mínar síður
Mínar síður eru þjónustugátt Reykjanesbæjar. Þar getur þú sótt um þjónustu, sent inn erindi og fylgst með stöðu þeirra á einum stað. Þú getur einnig skoðað fyrri umsóknir og svör þegar þér hentar.
Barnvænt samfélag
Börn og ungmenni eiga rétt á þátttöku og að hafa áhrif á samfélagið sitt. Í Barnasáttmálanum er sérstaklega fjallað um rétt þeirra til að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum sem þau varða og að tekið sé réttmætt tillit til sjónarmiða þeirra með hliðsjón af aldri og þroska. Með því að skapa börnum og ungmennum raunveruleg tækifæri til þátttöku og áhrifa eflum við lýðræði og byggjum samfélag þar sem allar raddir fá að heyrast.
Reykjanesbær er viðurkennt Barnvænt sveitarfélag hjá UNICEF og hefur innleitt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna markvisst í starfsemi sveitarfélagsins.
Nánar má lesa um innleiðinguna hér