Barnavernd vinnur að því að tryggja börnum öryggi, velferð og góð uppeldisskilyrði og styður fjölskyldur þegar aðstæður kalla á. Allir einstaklingar undir 18 ára aldri teljast börn, einnig ófædd börn.
Hvenær á að hafa samband við barnavernd
Ef þú hefur grun eða vitneskju um að barn búi við vanrækslu eða ofbeldi, eða ef þú hefur áhyggjur af hegðun barns sem getur stofnað heilsu þess eða þroska í hættu, ber að láta barnavernd vita. Börn geta einnig haft samband sjálf.
Það þarf ekki að vera fullvissa um að eitthvað sé rangt. Barn á rétt á að njóta vafans, og því á að tilkynna grun en ekki bíða eftir staðfestingu.
Tilkynning til barnaverndar er ekki kæra, heldur beiðni um aðstoð fyrir barn eða fjölskyldu sem þú telur að þurfi stuðning.
Hvernig er hægt að tilkynna?
Ef þú ert óviss um hvort aðstæður séu tilkynningaskyldar getur þú fengið ráðgjöf í netspjalli 112.is
Þjónusta og stuðningsúrræði
Áhersla er lögð á gott samstarf við foreldra og börn. Við viljum efla foreldra í uppeldishlutverkinu svo þau geti mætt þörfum barna sinna og veitt þeim öryggi og umönnun.
Þjónusta við börn og foreldra er þverfagleg og fer fram í samstarfi innan og milli sviða Reykjanesbæjar. Áhersla er lögð á að veita stuðning sem mest í nærumhverfi barnsins.
Dæmi um stuðningsúrræði barnaverndar:
- uppeldisleg ráðgjöf
- persónulegir ráðgjafar
- stuðningsfjölskylda
- vistun utan heimilis
- úrræði á vegum BOFS – Barna- og fjölskyldustofu
Tilkynningahnappur fyrir börn
Grunnskólanemendur í Reykjanesbæ geta haft samband við barnavernd með því að smella á tilkynningahnapp í spjaldtölvu sinni. Þannig geta börn sjálf leitað eftir aðstoð þegar þau þurfa.
Gagnlegir tenglar
