Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Ferli og áfrýjun

Tilkynning

Samkvæmt barnaverndarlög er fólki skylt að tilkynna til barnaverndar ef það telur að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stefni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. Það sama á við ef grunur er um að heilsu eða lífi ófædds barns sé stofnað í hættu.

Hægt er að óska eftir nafnleynd gagnvart þeim sem tilkynnt er um nema sérstakar ástæður mæli gegn því.

Ef málið þolir ekki bið og barnið er í bráðri hættu, hafðu samband við 112. Bakvakt Barnaverndar Reykjanesbæjar sinnir neyðartilvikum utan skrifstofutíma.

Könnun máls

Starfsfólk barnaverndar taka ákvörðun innan 7 daga frá því að tilkynning berst hvort hefja eigi könnun máls eða ekki. Mál er ekki kannað nema rökstuddur grunur um efni tilkynningarinnar liggi fyrir.

Mál telst barnaverndarmál þegar ákveðið hefur verið að hefja könnun. Foreldrar eru alltaf látnir vita að tilkynning hafi borist ásamt niðurstöðu móttöku- og greiningarfundar.

Við könnun máls eru foreldrar boðnir í viðtal til að fara yfir tilkynninguna og gerð er áætlun um könnun. Leitað er eftir samvinnu við foreldra varðandi áætlunina. Undantekning á þessu er þegar barn er talið í hættu í umsjá foreldra og það séu hagsmunir barns að foreldrar viti ekki af könnuninni tímabundið.

Í könnunarferlinu er lögð áhersla á að ræða við börn til að tryggja að sjónarmið og líðan þeirra komi skýrt fram. Reynt er að hafa könnunarferlið ekki víðameira en þörf er á en það sem er almennt skoðað er félagsleg staða og líðan barns, heima og í skóla, námsleg staða og stuðningsnet fjölskyldunnar. Að lokinni könnun er gerð greinargerð um hvaða stuðning á að veita fjölskyldunni á vegum barnaverndar. Ef ekki er talin þörf á að veita stuðning er málinu lokað.

Áfrýjun
Samkvæmt 6. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er hægt að skjóta úrskurðum og einstökum ákvörðunum barnaverndarnefnda til úrskurðarnefndar velferðarmála. Kærufrestur er 4 vikur frá því að aðila máls var tilkynnt um úrskurð eða ákvörðun.

Ef aðilar eru ósáttir við meðferð einstakra mála er hægt að leggja fram kvörtun til Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV).