Farsæld barna snýst um að börn fái að alast upp við öryggi, vellíðan og jöfn tækifæri. Í Reykjanesbæ leggjum við áherslu á að styðja börn og fjölskyldur þeirra snemma og á réttum tíma.
Hér finnur þú upplýsingar um þjónustu og samstarf sem miðar að því að efla farsæld barna. Unnið er þvert á þjónustukerfi með það að markmiði að hlusta á þarfir barnsins og bregðast við með viðeigandi stuðningi. Áherslan er á gott samstarf við börn og fjölskyldur og að börn fái stuðning sem hjálpar þeim að blómstra í daglegu lífi, námi og leik.

Ertu þjónustuveitandi barns og vilt miðla áfram upplýsingum til tengiliðar farsældar í nærumhverfi barnsins? Hér getur þú miðlað upplýsingunum áfram.
Hvað er samþætt þjónusta í þágu farsældar barna?
Samþætt þjónusta er samstarf um stuðning við barn. Markmiðið er að tryggja að barnið fái þá þjónustu sem það þarf hverju sinni.
Foreldrar, barn og þjónustuaðilar vinna þá saman. Þjónustan aðlagast þörfum barns og fjölskyldu.
Öll börn og fjölskyldur geta nýtt sér samþætta þjónustu þegar þörf er á. Það á við þegar fleiri en einn aðili kemur að þjónustu barns.
Foreldrar geta haft samband við tengilið í umhverfi barns. Tengiliður er yfirleitt í skóla barns eða á heilsugæslu.
Tengiliður farsældar er fyrsti aðili sem þú getur leitað til. Hann veitir ráðgjöf og hjálpar við að finna rétta þjónustu.
Sjá nánari upplýsingar á vef Farsældar barna.
Tengiliður farsældar er á mismunandi stöðum eftir aldri barns.
• Heilsugæsla frá meðgöngu til leikskólagöngu
• Skóli á leik-, grunn- og framhaldsskólaaldri
• Barna- og fjölskylduteymi Reykjanesbæjar ef barn fellur utan kerfa
Þú finnur nöfn og netföng tengiliða á vefsíðu hvers skóla og heilsugæslu.
Þú getur einnig sent beiðni um samtal við tengilið farsældar í gegnum Mínar síður.
Þjónusta fyrir börn er veitt á þremur þjónustustigum. Stigin lýsa því hversu mikill og sérhæfður stuðningur er veittur.
Flest börn fá stuðning á 1. stigi. Ef þörf er á meiri eða sérhæfðari þjónustu er stuðningur veittur á 2. eða 3. stigi.
Barn getur fengið þjónustu á fleiri en einu stigi. Stigskiptingin á við um þjónustuna, ekki barnið sjálft.
Sjá nánari upplýsingar um þjónustu á vef Farsældar barna.
Samþætting þjónustu – algengar spurningar
Ef þú ert foreldri og hefur áhyggjur af því að þörfum barns sé ekki mætt, geturðu leitað til tengiliðs farsældar í nærumhverfi barns.
Tengiliður býður í samtal, metur stöðuna og leiðir áfram næstu skref. Ekki er alltaf þörf á samþættingu.
Sjá nánari upplýsingar um hvernig samþætting hefst á vef Farsældar barna
Nei. Mörg börn fá fullnægjandi stuðning í almennri eða snemmtækri þjónustu.
Samþætting er aðeins notuð þegar hún er talin í þágu farsældar barns. Það er alltaf metið í hverju máli fyrir sig.
Samþætting kemur til greina þegar barn og fjölskylda fá þjónustu frá fleiri en einum aðila og ávinningur er af nánara samstarfi.
Ef þjónustan gengur vel og samvinna er góð, er ekki þörf á samþættingu.
Sjá nánari upplýsingar um mat á þörf fyrir samþættingu á vef Farsældar barna [hlekkur].
Nei, ekki endilega. Ef samstarfið gengur vel og þjónustan mætir þörfum barns, er ekki þörf á samþættingu.
Ef hins vegar koma upp hnökrar eða samvinna milli kerfa reynist erfið, er rétt að skoða hvort samþætting geti hjálpað.
Eyðublöð
Beiðni um miðlun upplýsinga er notuð þegar þjónustuveitandi utan skóla þarf að koma upplýsingum til tengiliðar barns.
Foreldrar eða barn veita þá samþykki fyrir afmarkaðri miðlun upplýsinga. Tengiliður hefur síðan samband við foreldra eftir að beiðnin hefur borist.
Sjá nánari upplýsingar um miðlun upplýsinga á vef Farsældar barna.
Beiðni um samþættingu þjónustu er notuð þegar óskað er eftir að þjónusta barns verði samþætt.
Eyðublaðið er fyllt út í samstarfi við tengilið eða málstjóra farsældar. Markmiðið er að tryggja skipulagða og samfellda þjónustu.
Þú getur sent almennar fyrirspurnir eða ábendingar á farsaeldbarna@reykjanesbaer.is
Ef spurning snýr að einstöku máli er best að hafa samband við tengilið farsældar eða málstjóra í nærumhverfi barns.
