Drekadalur 2, Reykjanesbær 260
drekadalur@drekadalur.is
420 5600 / 852 3964
Opnunartími 07:45-16:15

GLEÐI – LEIKUR – VIRÐING – HUGREKKI
Í Drekadal eru fimm heimastofur sem bera nöfn sem tengjast nærumhverfi okkar og sögu svæðisins: Drekakot (kemur frá Drekadal), Móakot, Hákot, Stapakot og Tjarnakot. Hreyfisalur skólans nefnist Njarðvík, sem undirstrikar tengsl okkar við samfélagið.
Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og er fyrir börn undir skólaskyldualdri.
Hugmyndafræði
Starf Drekadals byggir á Aðalnámskrá leikskóla (2011, 2023) og lög um leikskóla númer 90/2008.
Í aðalnámskránni eru skilgreindir sex grunnþættir menntunar sem fléttast inn í allt starf leikskólans:
Læsi, Sjálfbærni, Heilbrigði og velferð, Lýðræði og mannréttindi, Jafnrétti og Sköpun.
Þessir grunnþættir endurspeglast í daglegu starfi, samskiptum, leik og námi barna í Drekadal.
Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins í Drekadal. Í leik fá börn tækifæri til að kanna umhverfi sitt, vinna úr reynslu sinni og þróa færni á eigin forsendum.
Við lítum á leikinn sem mikilvægustu leið barna til náms og þroska. Í leik efla börn meðal annars félagsfærni, sköpunargáfu, samskipti, sjálfstæði og sjálfstraust. Leikurinn skapar einnig vettvang þar sem börn geta tjáð hugmyndir sínar, prófað sig áfram og fundið eigin styrkleika.
Í Drekadal sækjum við meðal annars innblástur til menntafræðingsins John Dewey, sem lagði áherslu á að börn læra best með virkri þátttöku og eigin reynslu.
Hugmyndin „Learning by Doing“ birtist í starfi okkar þegar börn fá að rannsaka, skapa, spyrja spurninga og takast á við verkefni sem vekja forvitni þeirra. Við leggjum áherslu á að virða hvert barn sem einstakan einstakling og styðja það í að verða virkur þátttakandi í eigin námi.
Drekadalur hefur hafið innleiðingu á flæðisnálgun með innblæstri frá kenningum sálfræðingsins Mihaly Csikszentmihalyi.
Markmið flæðisnálgunarinnar er að skapa aðstæður þar sem börn upplifa djúpa einbeitingu, gleði og virkni í leik og námi. Flæði verður þegar verkefni eru í jafnvægi við færni barnsins, vekja áhuga þess og bjóða upp á viðeigandi áskoranir.
Með því að skapa slíkar aðstæður stuðlum við að aukinni vellíðan, sjálfstæði, sköpun og dýpri námsupplifun barna.
Útinám er mikilvægur þáttur í starfi leikskólans Drekadals og byggir á flæðisnálgun með innblæstri frá kenningum Mihaly Csikszentmihalyi. Markmiðið er að skapa aðstæður þar sem börn geta sökkt sér í leik, könnun og nám út frá eigin áhuga og forsendum.
Náttúran er fjölbreytt námsumhverfi sem býður upp á endalaus tækifæri til uppgötvana, sköpunar og hreyfingar. Í útinámi fá börn tíma og rými til að fylgja eigin hugmyndum, rannsaka umhverfið og takast á við verkefni á sínum forsendum. Með þessari nálgun styðjum við sjálfstæði, sköpunargáfu, vellíðan og námsgleði barna. Útinámið verður vettvangur þar sem leikur, forvitni og reynslunám fléttast saman og stuðla að alhliða þroska barna.
Í Drekadal leggjum við ríka áherslu á málþroska og markvissa málörvun. Börn fá fjölbreytt tækifæri til að tjá sig, segja frá upplifunum sínum og taka þátt í innihaldsríkum samræðum.
Leikskólinn vinnur að þróunarverkefninu „Málþroski og hljóðkerfisvitund leikskólabarna í Drekadal – sögupokar sem kennsluaðferð“. Markmið verkefnisins er að efla orðaforða, hljóðkerfisvitund, málskilning, hlustun og tjáningu barna í gegnum sögur, leik og skapandi vinnu.
Starf Drekadals tekur mið af menntastefnu Reykjanesbæjar 2021-2030, þar sem lögð er áhersla á að öll börn fái að njóta öryggis, vellíðanar og jöfn tækifæri til náms og þroska.
Við vinnum að því að skapa samfélag þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að rækta hæfileika sína, styrkleika og áhuga í umhverfi sem einkennist af trausti, gleði og virðingu.