Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Leikskólinn Hjallatún

Hjallatún tók til starfa í janúar 2001. Leikskólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði sem leggur áherslu á leik, lýðræði, samskipti og styrkleika hvers barns.

◉ Vallarbraut 20, 260 Reykjanesbær
@ hjallatun@hjallatun.is
✆ 420 3150
◴ 07:30 – 16:15

Um leikskólann

Hjallatún tók til starfa í janúar 2001. Leikskólinn var upphaflega fjögurra deilda skóli en árið 2014 var byggt við hann og varð hann þá sex deilda skóli.

Í Hjallatúni dvelja 97 börn á aldrinum tveggja til sex ára. Boðið er upp á sveigjanlega vistunartíma, frá fjórum klukkustundum upp í átta og hálfa klukkustund á dag.

Hjallatún er opinn leikskóli þar sem börn og starfsfólk flæða milli deilda.

Hugmyndafræði

Námssvið leikskóla eru áhersluþættir í leikskólastarfi. Þau eru hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi og menning og samfélag.

Námssviðin skarast og eru samofin leik, daglegri umönnun og almennri lífsleikni. Í Hjallatúni er leitast við að flétta þau inn í allt starf leikskólans.

Við höfum það að leiðarljósi að í hverju barni búi styrkleikar og hæfileikar. Markmið okkar er að finna þann auð og byggja á því sem barnið gerir vel. Þaðan styðjum við barnið áfram í þroska og námi á öðrum sviðum.

Í starfinu styðjumst við við fjölgreindarkenningu Howard Gardner.

Einkunnarorð Hjallatúns eru

LEIKUR – LÝÐRÆÐI – SAMSKIPTI