◉ Tjarnargötu 19, 230 Reykjanesbæ
@ tjarnarsel@tjarnarsel.is
✆ 420 3100
◴ 07:45 – 16:15
Um leikskólann
Leikskólinn starfar á tveimur starfsstöðvum, við Tjarnargötu 19 og Skólaveg 1. Í skólanum eru 96 börn á fimm deildum og boðið er upp á sveigjanlegan dvalartíma frá fjórum upp í átta klukkustundir á dag.
Áhersla er lögð á mál og læsi, vettvangsferðir, umhverfismennt og útinám. Einnig er lögð áhersla á fjölbreyttan efnivið til listsköpunar og kubba af öllum stærðum og gerðum.
Tjarnarsel er Grænfánaskóli og hefur sjö sinnum hlotið viðurkenningu Landverndar fyrir umhverfismennt. Starfið byggir á þeirri hugmynd að börn læri best í gegnum leik, bæði innan dyra og úti, með hliðsjón af kenningum John Dewey og fleiri fræðimanna.

Hugmyndafræði
Í Tjarnarseli er leikurinn leiðarljós í öllu námi og starfi. Við byggjum meðal annars á hugmyndum John Dewey, Ingrid Pramling og Lev Vygotsky sem leggja áherslu á að börn læri í gegnum leik, reynslu og samskipti.
Sjálfsprottnum leik er gefinn góður tími, bæði inni og úti. Lögð er áhersla á fjölbreyttan og skapandi efnivið sem hvetur börn til að fylgja eigin áhuga, rannsaka og læra í gegnum leik og upplifun.
Einkunnarorð Tjarnarsels eru
