Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Leikskólinn Vesturberg

◉ Vesturbraut 15, 230 Reykjanesbær 230
@ vesturberg@vesturberg.is
✆ 420 3115
◴ 07:45 – 16:15

Um leikskólann

Vesturberg tók til starfa 18. júní 1997 og er staðsett við Vesturbraut í Reykjanesbæ.

Frá upphafi hefur leikskólinn starfað samkvæmt hugmyndafræði opins leikskóla með svæðaskiptingu þar sem frjáls leikur er leiðarljós í öllu starfi. Fyrirmyndin kemur frá Danmörku og var þróuð af Huldu Ólafsdóttur, fyrrverandi leikskólastjóra Vesturbergs.

Vesturberg er aldursblandaður leikskóli þar sem börn á aldrinum tveggja til sex ára eru saman á heimastofum. Núverandi húsnæði var tekið í notkun árið 2008 og er hannað með þarfir hugmyndafræði skólans að leiðarljósi.

Hugmyndafræði

Hugmyndafræði Vesturbergs byggir á dönskum grunni. Leikskólinn er svæðaskiptur með fimm heimastofum þar sem börn fara frjálst um húsið en kennarar skapa örvandi og hvetjandi námsumhverfi með hliðsjón af Aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar.

Frjáls leikur er leiðarljós í starfi leikskólans. Við lítum á hvert barn sem getumikinn einstakling sem hefur þörf fyrir ást, öryggi, hlýju og viðurkenningu hins fullorðna.

Einkunnarorð Veturbergs eru

FRUMKVÆÐI – VINÁTTA – GLEÐI