◉ Keilisbraut 774, 262 Reykjanesbær
@ vollur@leikskolinnvollur.is
✆ 421 8410
◴ 07:45 – 16:15
Um leikskólann
Leikskólinn Völlur er fjölmenningarlegur leikskóli fyrir börn á aldrinum 1–6 ára þar sem lögð er áhersla á vellíðan, virðingu, fjölbreytileika og farsæld. Leikskólinn starfar samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla og hugmyndafræði Heillaspora, þar sem jákvæð tengsl, styrkleikar barna og félags- og tilfinningaþroski eru í forgrunni.
Á Velli er fjölbreytileiki talinn styrkur og lögð áhersla á að öll börn og fjölskyldur upplifi sig velkomin, metin og virt. Móðurmál, menning og reynsluheimur barna eru sýnileg og mikilvægur hluti af daglegu starfi. Markmið leikskólans er að skapa öruggt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem börn fá tækifæri til að læra, leika, skapa og dafna á eigin forsendum.

Einkunnarorð Vallar eru
Virðing – Vellíðan – Fjölbreytileiki – Farsæld
Með þessum gildum að leiðarljósi vinnur leikskólinn að því að efla sjálfstraust, félagsfærni, seiglu og virka þátttöku barna í samfélaginu. Í nánu samstarfi við fjölskyldur er stuðlað að farsæld, öryggi og alhliða þroska allra barna.
