Ef börn á grunnskólaaldri og fjölskyldur þeirra þurfa aðstoð vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda, skertrar getu eða fötlunar getur Reykjanesbær veitt stuðning.
Stuðningsþörf er metin í samtali við ráðgjafa og tekur mið af aldri, þroska og stöðu barnsins. Markmiðið er að styðja barnið í daglegu lífi, efla félagsfærni og þátttöku og veita foreldrum stuðning í foreldrahlutverkinu.
Bóka viðtal hjá ráðgjafa
Ef þú telur að barnið þitt þurfi aukinn stuðning er fyrsta skrefið að bóka viðtal hjá ráðgjafa.
Þú getur bókað viðtal á nokkra vegu.
- Bóka viðtal á vefnum
Bókaðu viðtal á vefnum þegar þér hentar.
- Hafa samband með netfangi
Sendu netfang á reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
- Hringja í Þjónustuver
Hringdu í Þjónustuver í síma 421 6700.
Skólaþjónusta
Skólaþjónusta Reykjanesbæjar styður leik- og grunnskóla bæjarins í að efla faglegt skólastarf.
Markmiðið er að skólarnir hafi burði til að takast á við þau verkefni og áskoranir sem geta komið upp í daglegu starfi.
Skólaþjónustan leggur ríka áherslu á þverfaglega teymisvinnu. Í teyminu starfa ráðgjafarþroskaþjálfa, kennsluráðgjafar, sálfræðingar og talmeinafræðingar. Þjónustan byggir á heildarsýn þar sem aðstæður og hagsmunir nemenda eru alltaf í forgrunni, óháð því hvaða sérfræðingur veitir þjónustuna.
Unnið er eftir vönduðum og faglegum vinnubrögðum og stuðst við viðurkenndar aðferðir og klínískar leiðbeiningar. Velferð nemenda er ávallt höfð að leiðarljósi.
Lögð er áhersla á gott samstarf milli skólastiga og að veita heildræna þjónustu fyrir börn á aldrinum 2–16 ára. Þjónustan mótast af þörfum hvers barns, en ekki af skólastigi.