Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Skjólið

Frístund fyrir börn og ungmenni með langvarandi stuðningsþarfir

Skjólið er frístundastarf fyrir börn og ungmenni með langvarandi stuðningsþarfir í 5. – 10. bekk og í framhaldsskóla. Starfið fer fram eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og veitir öruggt, skipulagt og stuðningsríkt umhverfi.

Í Skjólinu er lögð áhersla á félagsfærni, jákvæð samskipti og þátttöku í fjölbreyttri frístund. Börn og ungmenni fá stuðning við að taka þátt í leik og starfi, mynda tengsl við önnur og efla sjálfstæði sitt í daglegu lífi.

Skjólið er opið alla virka daga, nema á lögbundnum frídögum.

Aðstaða

Skjólið er til húsa við Grænásbraut 910, í rúmgóðu og fjölnota þjónusturými sem er sérstaklega hannað með þarfir barnanna í huga. Þar fer fram dagleg starfsemi Skjólsins, hópastarf og önnur skipulögð frístund.

Umsókn

Umsókn í skjólið

Til að sækja um Skjólið þarftu fyrst að bóka viðtal hjá ráðgjafa á velferðarsviði.
Í viðtalinu förum við yfir stöðu barnsins og metum hvort Skjólið henti sem úrræði.

Kostnaður

Gjald fyrir Skjólið má finna í gjaldskrá, undir Frístundaskóli.

Umsókn

Umsókn í skjólið

Til að sækja um Skjólið þarftu fyrst að bóka viðtal hjá ráðgjafa á velferðarsviði.
Í viðtalinu förum við yfir stöðu barnsins og metum hvort Skjólið henti sem úrræði.

Bóka viðtal á vefnum

Þú getur bókað viðtal á vefnum þegar þér hentar.

Hafa samband með netfangi
Hringja í Þjónustuver

Þú getur hringt í Þjónustuver í síma 421 6700.