Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

Heima- og stuðningsþjónusta eldra fólks

Heima- og stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning í daglegu lífi. Þjónustan er ætluð þeim sem þurfa aðstoð vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar.

Stuðningsþjónusta er veitt bæði inni á heimilinu og utan þess.

Hverjir geta fengið þjónustuna?

Heima- og stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem býr á eigin heimili og þarf stuðning. Þörfin getur tengst skertri getu, veikindum, álagi eða fjölskylduaðstæðum.

Þegar umsókn hefur borist metum við aðstæður og stuðningsþörf. Þjónustan hefst í kjölfar þess mats.

Sækja um heima- og stuðningsþjónustu

Þú sækir um á Mínum síðum.

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Skattframtal síðasta árs
  • Skattframtal maka ef við á
  • Rökstutt vottorð frá viðurkenndum fagaðila um þörf fyrir þjónustu

Þú getur líka fyllt út eyðublað og sent á netfangið nesvellir@reykjanesbaer.is. Einnig er hægt að skila því prentuðu á þjónustuborðið á Nesvöllum.

Þegar þú hefur skilað inn umsókn munum við meta aðstæður og stuðningsþörf og höfum samband við þig.

Kostnaður

Kostnaður fer eftir tekjum. Þrif eru greidd samkvæmt gjaldskrá en önnur stuðningsþjónusta er ókeypis.

Ertu með spurningar?

Við erum hér til að hjálpa. Þú getur haft samband við Þjónustumiðstöðina á Nesvöllum í síma 420 3400 eða á netfangið nesvellir@reykjanesbaer.is.