Heimsendur matur er í boði alla daga ársins fyrir eldra fólk sem á erfitt með að elda heima eða kemst ekki í hádegisverð í þjónustumiðstöð á Nesvöllum. Markmiðið er að tryggja að fólk fái næringarríkan og góðan mat í heimahúsum.
Matseðill vikunnar er birtur í upphafi hverrar viku á Facebook-síðu Nesvalla.
Panta heimsendan mat
Þú getur pantað heimsendan mat á Mínum síðum. Þar ferðu í Umsóknir, velur Velferð og síðan Umsókn um heimsendan mat.
Einnig er hægt að skrá sig í áskrift með því að hafa samband við Nesvelli í síma 420 3400.
Pöntun með símtali
Hægt er að panta heimsendan mat með því að hringja í Nesvelli daginn áður.
- Pöntunartími: kl. 08:00 – 14:00
- Til að fá mat á mánudegi þarf að panta á föstudegi
- Eftir kl. 14:00 er of seint að panta heimsendingu fyrir næsta dag
Kostnaður
- Máltíð: 1.950 kr.
- Sendingargjald: 389 kr.
- Aðeins er eitt sendingargjald á hvert heimili
Matseðill
Matseðil vikunnar má finna á Facebook-síðu Nesvalla.