Félagslegt húsnæði
Ef þú ert að leita að félagslegu húsnæði getur þú sótt um á Mínum síðum. Þar fyllir þú út umsókn og sendir inn þau gögn sem beðið er um.
Fasteignir Reykjanesbæjar eru eigendur félagslega leiguhúsnæðisins í Reykjanesbæ og láta velferðarsvið vita þegar íbúð er laus til úthlutunar.
Við förum yfir umsóknir með hliðsjón af úthlutunarreglum. Litið er meðal annars til tekna, eigna og fjölskyldustærðar.
Velferðarsvið Reykjanesbæjar sér um úthlutun.
Félagslegar íbúðir fyrir eldra fólk
Við leggjum áherslu á að eldra fólk hafi aðgang að hentugu húsnæði. Húsnæðið er skipulagt með aðgengi, öryggi og vellíðan í huga.
Markmiðið er að íbúðirnar séu nálægt þjónustu og daglegu mannlífi. Þannig styðjum við við sjálfstæði og virkni í daglegu lífi.
Fasteignir Reykjanesbæjar eru eigendur félagsleg leiguhúsnæðis fyrir eldra fólk í Reykjanesbæ og láta velferðarsvið vita þegar íbúð er laus til úthlutunar.
Við förum yfir umsóknir með hliðsjón af úthlutunarreglum. Litið er meðal annars til tekna, eigna og fjölskyldustærðar.
Velferðarsvið Reykjanesbæjar sér um úthlutun.
Búseta fyrir fatlað fólk
Fatlað fólk á kost á fjölbreyttum búsetuúrræðum í Reykjanesbæ. Þjónustan er sniðin að ólíkum þörfum og aðstæðum.
Í boði eru heimili með sólarhringsþjónustu og stuðningur í sjálfstæðri búsetu. Markmiðið er að styðja fólk í daglegu lífi og þátttöku í samfélaginu.
Val á búsetu er tekið í samráði við viðkomandi og aðstandendur.
Sólarhringsþjónusta er veitt á þremur heimilum í bænum. Að auki fá margir stuðning á eigin heimili víðs vegar um Reykjanesbæ.