Við viljum efla velferð, sjálfstæði og lífsgæði með ráðgjöf, stuðningi og úrræðum sem taka mið af aðstæðum hvers og eins. Félagsþjónustan nær til ólíkra aðstæðna í lífi fólks, til dæmis þegar upp koma fjárhagslegir erfiðleikar, félagslegar áskoranir, húsnæðisvandi eða þörf fyrir stuðning í daglegu lífi. Lögð er áhersla á virðingu, trúnað og lausnamiðaða nálgun.
Á þessari síðu finnur þú leiðir að helstu úrræðum félagsþjónustu Reykjanesbæjar. Þar er meðal annars hægt að kynna sér stuðning vegna framfærslu, félagslega ráðgjöf, ráðgjöf vegna ofbeldis, húsnæðismál og heima- og stuðningsþjónustu.
Ef þú ert óviss um hvert þú átt að leita getur þú haft samband og fengið ráðgjöf um hvaða úrræði hentar best í þínum aðstæðum.



